Lífið

Er hægt að kaupa hamingju fyrir ís­lenskar krónur?

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi.
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. VÍSIR

Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda.

Ein er sú hugmynd sem kann að vera þeim hópi haldreipi í vonbrigðum sínum: Hamingju er hvort eð er ekki hægt að kaupa fyrir peninga.

Svo getur þó verið að þeir sem njóta góðs af rentunni séu hreint ekki jafnóhamingjusamir og við með tómu vasana vonuðum.

Hljóp út öskrandi

Júlímorgun árið 2013 keypti Emma Wildin, þrítug húsmóðir á Englandi, happaþrennu.

„Líf mitt snerist um móðurhlutverkið,“ sagði hún í samtali við dagblaðið Guardian. „Ég gerði mér dagamun með skafmiðunum.“

Emma leyfði sér nokkra skafmiða í viku. Einu sinni hafði hún unnið 100 pund.

Þennan dag fór Emma með skafmiðann út í garð. „Ég vildi fá nokkrar mínútur út af fyrir mig.“

Andartaki síðar hljóp hún öskrandi aftur inn. „Ég vann milljón!“

Ungir synir hennar horfðu á hana skilningssljóir. Hún hringdi í manninn sinn. Hann taldi líklegast að um mistök væri að ræða.

Svo var þó ekki.

Hjónin ákváðu að leyfa sér að eyða hundrað þúsund pundum í vitleysu. Þau fóru í frí í Disney World og Emma keypti sér Range Rover.

Það var þó ekki bíllinn sem kveikti með henni hamingjuna.

Milljón pund gagnlítil meðferð

Sú hugmynd var lengi viðtekin að hamingja fengist ekki fyrir peninga.

Árið 1974 sýndi bandaríski hagfræðingurinn Richard Easterlin hins vegar fram á að fullyrðingin ætti ekki við rök að styðjast; hinir ríku voru sannarlega hamingjusamari en þeir efnaminni.

Rannsóknir sýna að peningar kaupa hamingju.GETTY

Trúin á sambandsleysi auðs og hamingju var þó ekki dauð úr öllum æðum.

Árið 2010 skaut rótum sú hugmynd að þótt peningar gætu keypt hamingju væri kaupgetan að þessu leyti takmörkuð. Rannsókn Nóbelsverðlaunahafanna Daniel Kahneman og Angus Deaton sýndi að dagleg vellíðan ykist með tekjum, en aðeins upp að ákveðnu marki: Þakið var sagt 75.000 dollarar.

Aðdáendum einfaldleikans til ama reyndist málið þó ekki svo klippt og skorið.

Árið 2021 birti bandaríski sálfræðingurinn Matthew Killingsworth niðurstöður ýtarlegrar rannsóknar sem stangaðist á við fullyrðingar Nóbelsverðlaunahafanna. Hamingja jókst með auknum tekjum og ekkert augljóst þak var til staðar.

Í stað þess að fara í hár saman tóku vísindamennirnir saman höndum um að komast að því hvor rannsóknin var rétt.

Niðurstaðan var: báðar.

Í flestum tilfellum hélt hamingja áfram að aukast eftir því sem tekjur hækkuðu. Meðal hinna óhamingjusömustu var hins vegar þak á hamingjuaukningunni.

Var ástæðan sú að væru upptök óhamingju erfiðleikar við að greiða af húsnæðisláninu gerðu peningar kraftaverk. Stafaði óhamingja af hjónabandserfiðleikum var milljón pund hins vegar gagnlítil meðferð.

Hún þoldi það ekki

Emma Wildin keypti fleira en Range Rover fyrir skafmiðavinninginn.

Áður en Emma eignaðist milljón hafði hún þurft að biðja eiginmann sinn um peninga til neyslu. Hún þoldi það ekki.

Fyrir afganginn af milljóninni keypti hún tvær fasteignir sem hún leigið út. Leigutekjurnar tryggðu henni fjárhagslegt sjálfstæði og sjálfsvirðingu.

Hamingja er ekki eins og handtaska

Rannsóknum ber saman um að hamingja fáist fyrir peninga. Vísindin gera þó greinarmun á hamingju.

Er hamingjan eins og kaffibollinn; ódýrari í evruríkjunum?VÍSIR

Annars vegar er hamingja mæld í daglegri vellíðan: Ertu í góðu skapi? Stressaður? Kvíðinn?

Hins vegar almennri lífsánægju:Horfir þú á líf þitt, hversu vel finnst þér það ganga?

Peningar eru vel til þess fallnir að auka síðari tegundina.

Því peningar kaupa okkur ekki frelsi undan einsemd, sorg eða leiðindum. Þeir kaupa okkur ekki hamingju eins og nýja handtösku.

Þeir kaupa frelsi undan skelfingu þegar bíllinn bilar. Þeir kaupa frelsi til að hætta í vinnu sem okkur leiðist og leita að nýrri. Þeir kaupa frelsi til að panta pizzu þegar við erum of þreytt til að elda og svara játandi þegar vinkona stingur upp á að kíkja út í kokteil.

Peningar kaupa okkur aukna stjórn yfir eigin lífi og vörn gegn ýmsu sem getur farið úrskeiðis.

Í því felst hamingja.

Draumur á enda

Tæplega helmingur þjóðarinnar er nú óhamingjusamur yfir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald á aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu hafi bundið enda á drauminn um upptöku evrunnar.

En er ekki bara hægt að kaupa hamingju fyrir íslensku krónurnar okkar?

Rannsóknir segja já. Vandinn er hins vegar sá að við núverandi vaxtaskilyrði eru krónurnar þínar sennilega að kaupa einhverjum öðrum en þér hamingju.


Tengdar fréttir

Hvað hafa þau að fela?

„Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre.

Bíður þetta böl lands og þjóðar?

Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan.

Tapaði ellefu milljónum

David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans.

Stór brjóst eru stór

Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti.

Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur

Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur.

Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta

Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft.

Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.