Viðskipti innlent

Gagn­rýna Við­skiptaráð fyrir að sleppa fjórðu út­flutnings­stoðinni

Kjartan Kjartansson skrifar
Sigurður Hannesson og félagar í Samtökum iðnaðarins eru ekki kátir með að Viðskiptaráð hafi ekki nefnt tækni- og hugverkaiðnaðinn sem eina af burðarstólpum íslensks útflutnings í skýrslu þrátt fyrir að hlutdeild hans sé á pari við sjávarafurðir.
Sigurður Hannesson og félagar í Samtökum iðnaðarins eru ekki kátir með að Viðskiptaráð hafi ekki nefnt tækni- og hugverkaiðnaðinn sem eina af burðarstólpum íslensks útflutnings í skýrslu þrátt fyrir að hlutdeild hans sé á pari við sjávarafurðir. Vísir/Egill

Samtök iðnaðarins krefja Viðskiptaráð um að það leiðrétti skýrslu sem það birti nýlega um íslenska hagkerfið. Ástæðan er sú að Viðskiptaráð nefndi ekki tækni- og hugverkaiðnaðinn sem fjórðu stoðina í útflutningi Íslands.

Tilefni athugasemdar Samtaka iðnaðarins er skýrslan „The Icelandic Economy 2026“ og örmyndband sem Viðskiptaráð birti á samfélagsmiðlum um íslenska hagkerfið. Í því lýsi ráðið sjávarútvegi, ferðaþjónustu og álframleiðslu sem þremur meginstoðum útflutnings Íslands.

Samtök iðnaðarins segja þessa þrískiptu mynd hafa verið rétta fyrir tveimur áratugum en ekki lengur í tilkynningu sem þau sendu fjölmiðlum í morgun.

„Hið rétta er að fjórar stoðir útflutnings skila 90% útflutningstekna. Viðskiptaráð getur ekki tækni- og hugverkaiðnaðar, þótt greinin hafi skilað 369 milljörðum króna í útflutningstekjur á síðasta ári og sé sú stoð sem gæti orðið sú verðmætasta á næstu árum,“ segir í tilkynningunni.

Tækni- og hugverkaiðnaðurinn hafi staðið fyrir nítján prósentum af heildarútflutningstekjum hagkerfisins í fyrra. Útflutningstekjur iðnaðarins hafi áttfaldast frá árinu 2008. Til samanburðar standi orkusækinn iðnaður nú undir 21 prósenti útflutningsteknanna, ferðaþjónustan 32 prósentum og sjávarafurðir átján prósentum.

„Samtök iðnaðarins hafa komið þessum athugasemdum á framfæri við Viðskiptaráð og hvetja þau til að leiðrétta þessar upplýsingar í umfjöllunum sínum um útflutningsstoðir Íslands,“ segir í tilkynningu samtakanna.


Tengdar fréttir

Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs

Kennarar eru hvumsa yfir greiningu Viðskiptaráðs á skýrslu menntamálaráðuneytisins um námsárangur í framhaldsskólum eftir grunnskólum. Þeir segja aðferðafræðina ekki standast, aðeins hluti nemenda útskrifist á nákvæmlega þremur árum, munur sé á árgöngum og tölurnar því kolrangar, að þeirra sögn. Þá sé einungis um að ræða bóknám en enga nemendur í iðnnámi.

Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð

Formenn stéttarfélaganna BHM og BSRB gagnrýna harðlega úttekt Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þær segja skýrsluna unna út frá misvísandi gögnum og að tillaga ráðsins um að færa veikindarétt opinberra starfsmanna til jafns við einkageirann sé ómanneskjuleg. 

Vísar gagn­rýni verkalýðs­leið­toga til föður­húsanna

Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs vísar athugasemdum formanns BSRB um úttekt ráðsins á veikindarétti opinberra starfsmanna á bug. Hann hafnar því að alvarlegar misfellur séu í greiningu ráðsins sem dregur þá ályktun að veikindaréttur þeirra geti verið sjöfaldur á við starfsmann með sama starfsaldur í einkageiranum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×