„Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Áróra L Davíðsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 13:45 Leikkonan Nicole Kidman og Alexandra Chernyshova í Vatnshelli á Snæfellsnesi. Alexandra Chernyshova Óperusöngkonan Alexandra Chernyshova var fengin til þess að syngja fyrir hóp ferðamanna ofan í Vatnshelli á Snæfellsnesi. Henni til mikillar undrunar var Hollywood-stjarnan Nicole Kidman meðal hópsins.
Alexandra segist oft hafa verið bókuð í slík gigg en hafi í fyrsta sinn verið að koma fram í Vatnshelli. Fyrir algjöra tilviljun og að Alexöndru óvitandi fyrr en ofan í hellinn var komið var Nicole Kidman meðal áheyrenda en Alexandra er einmitt mikill aðdáandi leikkonunnar. „Ég er mikill aðdáandi hennar þannig þetta var alveg ógleymanlegt söngævintýri,“ segir Alexandra. „Ég hef aldrei sungið fyrir Hollywood-stjörnu áður, síðasta stjarna sem ég söng fyrir var Vigdís Finnbogadóttir,“ segir hún og hlær. Hún hafi verið bókuð til þess að flytja lög fyrir hóp fólks, um það bil sextán manna hóp sem samanstóð meðal annars af fjölskyldu Kidman. Hún hafi sungið fyrir þau íslensk söng- og þjóðlög og sagt frá sögu þeirra. Hollywood-stjarnan hafi verið afar hrifin af flutningnum og lögunum. „Ég er mjög þakklát og hamingjusöm með að þau hafi verið hrifin og himinlifandi með flutninginn. Það er virkilega skemmtilegt að syngja fyrir skemmtilegt fólk,“ segir Alexandra. Í gær var greint frá því að Kidman hefði lagt leið sína til landsins og að hún væri stödd á Akureyri. Hún opnaði sig á dögunum í viðtali um erfiðleika síðastliðins árs en í september síðastliðnum skildu leiðir hennar og kántrístjörnunnar Keiths Urban.
Íslandsvinir Snæfellsbær Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tónlist Ástin og lífið Skilnaður Nicole Kidman og Keith Urban Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira