Sport

Sigur­björn í sér­flokki og tveir þjálfarar toppa for­mann KSÍ á tekjulistanum

Sindri Sverrisson skrifar
Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson störfuðu saman hjá Breiðabliki og Halldór tók svo við sem aðalþjálfari liðsins. Þeir eru í 3. og 4. sæti lista Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæsta íþróttafólkið á Íslandi 2025.
Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson störfuðu saman hjá Breiðabliki og Halldór tók svo við sem aðalþjálfari liðsins. Þeir eru í 3. og 4. sæti lista Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæsta íþróttafólkið á Íslandi 2025. Vísir/Hulda Margrét

Hestamaðurinn Sigurbjörn Bárðarson, Íþróttamaður ársins 1993, var með langhæstar tekjur íþróttafólks á Íslandi á síðasta ári. Tveir þjálfarar úr Bestu deild karla í fótbolta reyndust með hærri tekjur en formaður KSÍ.

Þetta kemur fram í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag en þar er meðal annars greint frá útsvarsskyldum tekjum hóps íþróttamanna og þjálfara.

Sigurbjörn var samkvæmt úttektinni að meðaltali með rúmar fimm milljónir króna á mánuði í tekjur, eða um 1,1 milljón meira en aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson sem er í 2. sæti íþróttamannalistans.

Sigurbjörn Bárðarson var landsliðsþjálfari í hestaíþróttum á síðasta ári.Vísir

Þeir Sigurbjörn og Hafþór skera sig úr á listanum en næstir á eftir koma fótboltaþjálfarar sem unnu saman í nokkur ár, þeir Halldór Árnason sem var þjálfari Breiðabliks og Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfar KR.

Þeir voru með ívið hærri tekjur en Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sem er í 6. sæti listans, rétt fyrir ofan starfsmann sambandsins, Arnar Gunnlaugsson sem þjálfar A-landslið karla.

Tekjuhæsta íþróttafólkið á lista Frjálsrar verslunar:

  1. Sigurbjörn Bárðarson, fv. landsliðsþjálfari í hestaíþróttum, 5.094.000
  2. Hafþór Júlíus Björnsson, aflraunamaður, 3.913.000
  3. Halldór Árnason, fv. þjálfari Breiðabliks í fótbolta, 1.948.000
  4. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR í fótbolta, 1.906.000
  5. Gunnar Nelson, bardagaíþróttamaður, 1.844.000
  6. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, 1.839.000
  7. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, 1.813.000
  8. Sigursteinn Arndal, fv. þjálfari FH í handbolta, 1.716.000
  9. Logi Ólafsson, fv. fótboltaþjálfari og íþróttakennari, 1.675.000
  10. Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks í fótbolta, 1.651.000

Ljóst er að tekjur íþróttafólksins á listanum eru ekki endilega allar vegna starfa í íþróttahreyfingunni. Handboltaþjálfarinn Sigursteinn Arndal, sem er í 8. sæti listans, er til að mynda sömuleiðis sölustjóri hjá Sýn, og fótboltamaðurinn Viktor Karl Einarsson stofnaði fyrirtækið Zantino og selur sérsaumuð jakkaföt auk þess að vera dreifingastjóri Maul.

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025.

Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×