Glænýtt gólf fyrir fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 10:31 Sigurgeir Árni Ægisson og félagar í Kaplakrika hafa haft í nógu að snúast í sumar áður en ný leiktíð hefst í Olís-deildinni. Sýn Sport FH-ingar hafa staðið í ströngu í sumar að koma íþróttasalnum í Kaplakrika í stand fyrir næsta tímabil í handboltanum. Nú hefur verið skipt um parket í þessum fornfræga íþróttasal.
Stefán Árni Pálsson heimsótti Kaplakrika og steig inn á nýja parketið sem nú er komið í staðinn fyrir það gamla sem orðið var 36 ára gamalt. „Það var orðið lúið. Það var búið að pússa það og slípa alveg niður, og svo var grindin á mörgum stöðum orðin léleg. Alls konar viðgerðir í gegnum tíðina, svo þetta var orðið tímabært,“ segir Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH. Hann segir að gamla parketinu, sem svo margir eftirminnilegir leikir voru spilaðir á, hafi að mestu verið hent. „En það var nú eitthvað varðveitt svo það getur nú verið að það verði nú uppboð á einhverjum flísum, og að gamlar stjörnur sjái í hillingum parketið þar sem þeir gerðu einhverja meistaratakta,“ segir Sigurgeir Árni léttur. Gömlu stúkurnar nýttar fram yfir Evrópudeildina Stúkurnar í Kaplakrika eru einnig upprunalegar og til stendur að skipta þeim út einnig en því hefur þurft að fresta um sinn. „Það er aðeins flóknari framkvæmd. Stúkurnar eru ekki lagervara og það þarf að hanna þær út frá hverju húsi. Það er ýmislegt í þessu húsi sem þarf að sníða þetta að. Við vorum ekki nógu ánægðir með lausnina sem við fengum og það er verið að smíða ný útboðsgögn. Ef það er verið að gera þetta á annað borð þá þurfum við að vera fullkomlega sáttir með þetta,“ segir Sigurgeir Árni. Gömlu stúkurnar verða því áfram í Kaplakrika í haust þegar Aron Pálmarsson hefur þjálfaraferil sinn og stýrir lærisveinum sínum meðal annars í spennandi Evrópuleikjum: „Við erum að fara í Evrópudeildina sem hefst í lok næsta mánaðar. Við sáum það að nýja stúkan yrði aldrei klár fyrir það og hugsuðum því að það væri betra að bíða fram yfir Evrópudeildina,“ segir Sigurgeir Árni.
FH Olís-deild karla Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Kveðja Bjarna með miklum söknuði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Glænýtt gólf fyrir fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sjá meira