Golf

Sigurinn sögu­legi breytt miklu fyrir Ólíver: „Mjög mikill heiður“

Aron Guðmundsson skrifar
Ólíver Elí Björnsson er fyrsti Íslendingurinn til þess að vinna opna breska áhugamannamótið í flokki ungmenna. Mótið er eitt það stærsta í Evrópu.
Ólíver Elí Björnsson er fyrsti Íslendingurinn til þess að vinna opna breska áhugamannamótið í flokki ungmenna. Mótið er eitt það stærsta í Evrópu. Aðsend mynd

Ólíver Elí Björns­son, sex­tán ára kylfingur úr Golf­klúbbnum Keili, gerði sér lítið fyrir og vann opna breska áhuga­manna­mót pilta í golfi. Pilturinn hefur hlotið verðskuldaða at­hygli í kjölfarið og stefnir langt í íþróttinni. Hann mátti vert vera að því að taka upp úr ferðatöskunni þegar heim var komið því stórt mót með úr­vals­liði Evrópu tekur nú við.

Ólíver er fyrsti Ís­lendingurinn til þess að vinna mótið sem er eitt það stærsta í flokki ung­menna í Evrópu en meðal þeirra sem hafa unnið mótið í glæstri sögu þess eru vel þekktir kylfingar á borð við Matt­hew Fitzp­at­rick, Sergio Garcia og Jose Maria Olazábal.

„Að vera fyrsti Ís­lendingurinn til að af­reka þetta er mjög mikill heiður og það var bara ótrú­lega gaman að ná að gera þetta,“ segir Ólíver Elí í sam­tali við íþrótta­deild Sýnar.

Þegar að þú heldur inn í þetta mót, var þetta eitt­hvað sem þú varst að búast við?

„Ekki beint. Leikurinn minn var ekki alveg á þeim stað sem ég vildi. Ég var ekki að slá mitt besta en svo þegar að mótinu kom fór þetta allt í gang. Ég náði lík­legast að spila mitt besta golf á ævinni til þessa.“

Steig upp eftir erfiða byrjun

Fyrsti hringur Ólívers á mótinu lofaði ekki svo góðu. Hann fór hann á fimm höggum yfir pari og var um sex höggum frá niður­skurðalínunni fyrir annan hring mótsins sem átti eftir að skera úr um fram­hald hans á mótinu. Þann hring fór Ólíver á tíu höggum undir pari, bætti sig um tíu högg milli hringa og komst áfram.

„Ég sagði við pabba eftir þennan fyrsta hring að ég ætlaði að vera agressívari og hef engu að tapa. Það versta sem gat gerst var að ég næði ekki að spila minn leik og væri þá á leið heim en svo náði ég bara að spila rosa­lega vel. Þetta virkaði.“

Ólíver einbeitturAðsend mynd

Sigur með draumahöggi í bráðabana

Eftir að hafa tryggt sér sæti í útsláttar­keppni mótsins lagði Óli­ver að velli hvern kylfinginn á fætur öðrum, meðal annars ríkjandi Evrópu­meistara frá Frakk­landi áður en hann hafði betur í úr­slita­ein­víginu í bráða­bana gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu ein­vígi. Ólíver las vel í aðstæður þegar að mest á reyndi.

„Ég reyndi bara að vera í núinu, ná að klára þetta og ég vissi að ég væri með meira sjálf­s­traust en hann því hann var farinn að vera í smá rugli af teig, týndi meðal annars bolta á sau­tjándu holu. Ég vissi að með því að slá gott högg af teig myndi ég setja pressu á hann. Ég sló á besta stað til þess að ná á pinna í öðru höggi.“

Drauma­högg?

„Já innáhöggið er lík­lega besta högg sem ég hef slegið á ævinni undir pressu.“

Stoppar ekki lengi heima

Með sigrinum má búast við því að Ólíver taki risastökk á nýjum heims­lista áhuga­kylfinga sem verður opin­beraður á morgun kemur. Þá tryggir hann Ólíver inn á Opna breska áhuga­manna­mótið sem og sæti á lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið.

„Það tók mig smá tíma að átta mig á því að ég hefði af­rekað þetta. Ég varð rosa­lega glaður eftir að hafa unnið þetta og gat fagnað með mömmu og pabba. Það er ógleyman­legt.“

Ólíver Elí er kylfingur í Golfklúbbnum Keili og hefur þar geta þróað sinn leik í frábærum aðstæðumVísir/Bjarni

Ís­lendingurinn ungi hlaut svo hinn mikla heiður að vera valinn í úr­vals­lið Evrópu og má vart vera að því að taka upp úr ferðatöskunni. Tækifæri bjóðast eftir svo glæstan sigur.

„Þetta gefur mér tækifæri á fullt af mótum er­lendis. Ég fer á morgun (í dag) á Jacqu­es Léglise Trop­hy, spila með úr­vals­liði Evrópu á móti úr­vals­liði Bret­lands­eyja. Þetta er búið að breyta mjög miklu hjá mér, þessi sigur. Hann mun örugg­lega gefa mér mjög mikið af tækifærum sem ég hafði ekki áður fyrr.“

Þjálfarar úr háskólagolfinu haft samband

Hefurðu fundið fyrir meiri at­hygli eftir að sigurinn var í höfn?

„Já al­gjör­lega. Það hafa til að mynda þjálfarar í háskólagolfinu sent á mig skila­boð. Þjálfarar sem ég hafði ekki talað við áður úr stórum háskólum.“

Ólíver ætlar sér langt í íþrótinni.

„Eftir mennta­skólann er stefnan sett á háskólagolfið og svo reyna við at­vinnu­mennsku eftir það. En akkúrat núna ætla ég bara að lifa lífinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×