Sport

Ís­lands­met hjá ís­lensku karlasveitinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íslenska sveitin eftir sundið í morgun.
Íslenska sveitin eftir sundið í morgun. mynd/sundsamband íslands

Íslenska karlasveitin setti nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi á lokadegi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París í morgun. Sveitin synti á 3:42,35 og bætti gamla Íslandsmetið um 0,79 sekúndur.

Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius skipuðu íslensku sveitina.

Guðmundur hóf keppni fyrir Íslands hönd í baksundsleggnum og bætti þar um leið sitt persónulega met í 100 metra baksundi. Hann synti á 55,94 sekúndum og lækkaði fyrra met sitt um þrjá hundraðshluta.

Einar tók við keflinu í bringusundinu og synti á 1:01,38. Birnir Freyr sá um flugsundslegginn og kom í bakkann á 54,27 sekúndum áður en Símon Elías lauk keppni fyrir Íslands hönd með skriðsundinu á 50,76 sekúndum.

Guðmundur lagði mikla áherslu á að koma íslensku sveitinni vel af stað og skapa góða stemningu fyrir félaga sína.

„Ég ætlaði að byrja að rúlla snjóboltanum þannig að strákarnir myndu fá smá pepp í sig og komast undir þetta Íslandsmet, þannig að það heppnaðist bara mjög vel,“ sagði Guðmundur eftir sundið í samtali við Sundsamband Íslands.

Íslenska sveitin kom í bakkann á 3:42,35 og bætti þar með metið sem sett var á Smáþjóðaleikunum árið 2025. Fyrra metið var 3:43,14.

Ísland hafnaði að lokum í 18. sæti af 19 sveitum í greininni en getur engu að síður gengið sátt frá borði eftir að hafa sett nýtt Íslandsmet á lokadegi mótsins.

Þar með er keppni íslenska sundliðsins á Evrópumeistaramótinu í París lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×