Sport

Magnus Carlsen varði titilinn á HM í rafíþróttum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magnus Carlsen bætti við enn einum heimsmeistaratitlinum á ferilskrána í dag.
Magnus Carlsen bætti við enn einum heimsmeistaratitlinum á ferilskrána í dag. Getty/Yu Chun Christopher Wong

Norski stórmeistarinn Magnus Carlsen sigraði á skákmótinu á heimsmeistaramótinu í rafíþróttum í annað sinn þegar hann gjörsigraði hinn unga Hvítrússa Denis Lazavik í París í úrslitaleik í dag.

Carlsen vann 3-1 í báðum fyrstu tveimur settunum og þar með var einvíginu lokið. Hann lenti aldrei í vandræðum gegn ungum andstæðingi sínum og vann sigur með nokkuð yfirburðatölum.

Norðmaðurinn hefur unnið titilinn í bæði skiptin sem HM í rafíþróttum í skák hefur verið haldið. Fyrir sigurinn í París fékk hann bikar og verðlaunaávísun upp á 250.000 dollara eða næstum því 31 milljón íslenskra króna.

„Það er skemmtilegt að allir skákmennirnir sem ég hef mætt á mótinu eru fæddir eftir árið 2000. Ég sagði fyrirfram að hann væri ekki sérstaklega góður í að verjast í hróksendatöflum, og það réði úrslitum í fyrsta settinu. Svo hélt ég þessu þéttu, ég reyndi að gefa honum ekki of mörg augljós yfirburðatækifæri og nýtti þau færi sem ég fékk,“ sagði Carlsen í sigurviðtali við mótshaldara.

Hinn sigursæli Norðmaður var einnig spurður hver gæti stöðvað hann.

„Ég veit það ekki. Í þessu keppnisfyrirkomulagi held ég að það sé ekki svo auðvelt, allavega ekki á þessum tímapunkti,“ svaraði Carlsen.

Hinn 35 ára gamli Magnus Carlsen hefur unnið fjölda heimsmeistaratitla á ferlinum hvort sem það er í hefðbundinni skák, atskák, hraðskák, frjálsri skák eða öðrum skákformum. Hann hefur unnið meira en 20 heimsmeistaratitla, þar á meðal fimm í hefðbundinni skák á sínum goðsagnakennda ferli. Eins og er er hann ríkjandi heimsmeistari í bæði atskák, hraðskák og frjálsri skák.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×