Sport

Dag­skráin: Subway-messan og Sam­félags­skjöldurinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stuðningsmaður Arsenal gerir grín að stuðningsmanni Manchester City sem hafði gert grín að Arsenal fyrir að klúðra alltaf góðum stöðum. Nú mætast meistarar síðasta tímabils í dag.
Stuðningsmaður Arsenal gerir grín að stuðningsmanni Manchester City sem hafði gert grín að Arsenal fyrir að klúðra alltaf góðum stöðum. Nú mætast meistarar síðasta tímabils í dag. Getty/Stuart MacFarlane

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á sunnudögum.

Þrír leikir fara fram í Bestu deild karla í fótbolta og það verður hægt að fylgjast með þeim öllum í einu í Subway-messunni en einnig horfa á þá hvern fyrir sig.

KR-ingar taka á móti Blikum í Vesturbænum, FH-ingar fá Íslandsmeistara Víkinga í heimsókn og Skagamenn sækja Eyjamenn heim í Herjólfsdal.

Enski boltinn er að hefjast og í dag fer fram Samfélagsskjöldurinn þar sem Englandsmeistarar Arsenal og bikarmeistarar Manchester City mætast.

Það er einnig hægt að sjá beina útsendingu frá lokadegi á danska meistaramótinu í golfi, Danish Golf Championship, sem og beina útsendingu frá The Standard Portland Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 17.50 hefst Subway-messan þar sem fylgst verður með þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta á sama tíma.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 17.45 hefst bein útsending frá leik KR og Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik ÍBV og ÍA í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 4

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik FH og Víkings í Bestu deild karla í fótbolta.

SÝN Sport 4

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá danska meistaramótinu í golfi, Danish Golf Championship, á DP World Tour.

Klukkan 22.00 hefst bein útsending frá The Standard Portland Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik Arsenal og Manchester City sem keppa um Samfélagsskjöldinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×