Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 18:23 Stjörnustrákarnir Kormákur Nói Jack og Baltasar Torfi Hlynsson skoruðu 34 stig saman í kvöld og hér hjálpa þeir Sindramanninum Hlyni Inga Finnssyni á fætur. FIBA Basketball Íslenska sextán ára landsliðið í körfubolta tryggði sér sæti í úrslitaleik B-deildar Evrópukeppninnar í kvöld og um leið sæti í A-deildinni á næsta ári.
Íslenska liðið vann sannfærandi 44 stiga sigur á Bosníu í undanúrslitaleiknum í kvöld, 95-51, eftir að hafa verið 47-30 yfir í hálfleik. Íslensku strákarnir tóku öll völd snemma í leiknum og voru komnir fjórtán stigum yfir, 29-15, eftir fyrsta leikhluta. Eftir þessa frábæru byrjun var ljóst í hvað stefndi en okkar strákar gáfu ekkert eftir og hreinlega keyrðu yfir Bosníumenn sem áttu engin svör. Þrjár efstu þjóðirnar tryggja sig upp í A-deildina og farseðillinn þangað er því í höfn með sæti í úrslitaleiknum. Íslensku strákarnir hlusta hér á þjóðsönginn fyrir undanúrslitaleikinn í kvöld.FIBA Basketball Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson og Keflvíkingurinn Davíð Breki Antonsson voru nálægt þrennu. Atli Freyr var með 16 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar en Davíð Breki með 11 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Stjörnustrákarnir Kormákur Nói Jack og Jón Breki Sigurðarson voru mjög öflugir undir körfunum í kvöld. Kormákur var með 20 stig og 10 fráköst en Jón Breki skoraði 9 stig, tók 12 fráköst og varði 3 skot. Stjörnustrákurinn Baltasar Torfi Hlynsson skoraði 14 stig, Keflvíkingurinn Arnar Freyr Elvarsson skoraði 9 stig og Sindramaðurinn Hlynur Ingi Finnsson var með 6 stig. Íslensku strákarnir hafa unnið sex af sjö leikjum sínum á mótinu en þeir hafa komið á móti öflugum þjóðum eins og Úkraínu, Norður-Makedóníu, Sviss, Kýpur og Svartfjallalandi. Íslenska liðið vann báða leiki sína í útsláttarkeppninni með sannfærandi hætti því Svartfellinga unnu strákarnir með 22 stiga mun í átta liða úrslitunum. Króatía og Eistland mætast í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld en það þarf eitthvað mjög óvænt að gerast ef íslensku strákarnir mæta ekki hinu gríðarlega sterka króatíska liði í úrslitaleiknum á morgun.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Golf Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Enski boltinn Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn „Dásamleg manneskja með risastórt hjarta“ Fótbolti Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal Sjá meira