Lífið

Hjart­næm at­höfn þegar Gunnar Þórðar­son var jarð­sunginn

Jón Þór Stefánsson skrifar
Kistuberar voru: Sigurjón Sighvatsson, Jónas R. Jónsson, Egill Eðvarðsson, Óttar Felix Hauksson, Karl B. Herman Gunnarsson, Zakarías Herman Gunnarsson, og Unnar Helgi Daníelsson.
Kistuberar voru: Sigurjón Sighvatsson, Jónas R. Jónsson, Egill Eðvarðsson, Óttar Felix Hauksson, Karl B. Herman Gunnarsson, Zakarías Herman Gunnarsson, og Unnar Helgi Daníelsson. Vísir/Anton Brink

Gunnar Þórðarson, einn mesti brautryðjandi íslenskrar tónlistar og eitt helsta tónskáld þjóðarinnar, var jarðsunginn í Hallgrímskirkju í dag. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson jarðsöng og einvalalið tónlistarfólks kom fram.

Gunnar lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 29. júlí síðastliðinn, 81 árs að aldri.

Eftir hann liggur langur lagalisti sem inniheldur mörg ástsælustu lög þjóðarinnar. Nokkur þeirra voru flutt í útförinni í dag: Alex Óli Jónsson söng Hafið, Pálmi Gunnarsson söng annars vegar Kvölda tekur, og hins vegar Þitt fyrsta bros, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng Ástarsælu og Vetrarsól, Dísella Lárusdóttir söng lög Gunnars við ljóð Hallgríms Péturssonar Allt eins og blómstrið eina og Ég lifi í Jesú nafni. Þá söng sonur Gunnars, Zakarías Herman Gunnarsson, Vesturgötu.

Hljómsveit, strengjasveit og Sönghópur Fríkirkjunnar léku undir og sungu með.

Gunnar hafði glímt við erfið veikindi á síðustu árum. Í minningarorðum sínum minntist Zakarías sonur Gunnars á að í gegnum veikindin hafi faðir hans aldrei misst húmorinn.

Zakarías Herman Gunnarsson fór með minningarorð um föður sinn. Einnig söng hann Vesturgötu.Vísir/Anton Brink
Karl B. Herman Gunnarsson, sonur Gunnars fór með minningarorð um föður sinn.Vísir/Anton Brink

„Hvað einkenndi hans persónu?“ spurði séra Hjörtur í athöfninni, og svaraði um leið: 

„Hógværð, hann var hlýr í viðmóti, yfirvegun, sterk jarðtenging, en um leið flaug hann himinhátt í tónlistarsköpun sinni. Hann gat vissulega verið fastur fyrir og fylginn sér, en bjó um leið yfir þeirri mýkt og hárfínu næmni sem einkenna laglínusmíðar hans.“

Þá sagði Hjörtur fallega sögu af því þegar Gunnar, sem þá var orðinn veikur, vildi heimsækja aftur á æskuslóðirnar, og fara á Ljósanótt.

„Í fyrra vildi hann komast á Ljósanótt í Keflavík. Það ætlaði hann sér þrátt fyrir andmæli og aðvaranir lækna og aðstandenda. Með ættlægri þrjósku stollta strandamannsins frá Hólmavík, þá tókst honum það.“ 

Einvalalið tónlistarfólks kom fram í athöfninni.Vísir/Anton Brink
Ólafur Haukur Símonarsson rithöfundur hélt fallega ræðu um Gunnar.Vísir/Anton Brink
Egill Eðvarðsson las minningarorð um vin sinn, hann Gunna.Vísir/Anton Brink
Hallgrímskirkja var þétt setin.Vísir/Anton Brink
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng Vetrarsól og Ástarsælu.Vísir/Anton Brink
Pálmi Gunnarsson söng Kvölda tekur, og Þitt fyrsta bros.Vísir/Anton Brink
Hinn ungi Alex Óli Jónsson söng Hafið.Vísir/Anton Brink
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson sá um athöfnina.Vísir/Anton Brink

Útsendingu frá útförinni í heild sinni má sjá hér:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.