Lífið

Út­för Gunnars Þórðar­sonar

Jón Þór Stefánsson skrifar
Úftör Gunnars Þórðarsonar verður frá Hallgrímskirkju.
Úftör Gunnars Þórðarsonar verður frá Hallgrímskirkju.

Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður Íslandssögunnar, verður borinn til grafar í dag. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju og hefst klukkan 15.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá athöfninni í spilaranum hér fyrir neðan.

Gunnar fæddist þann 4. janúar 1945 á Hólmavík, og lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 29. júlí síðastliðinn.

Ungur fluttist Gunnar til Keflavíkur, bæjar sem meðal annars þökk sé honum hefur verið kallaður Bítlabærinn, en þar hófst ferill hans. 

Þekktastur Gunnar fyrir aðkomu sína að hljómsveitunum Hljómum, Trúbroti, Ríó tríói, og Ðe lónlí blú bojs.

Hann markaði djúp spor í íslenskri tónlistarsögu, en á meðal þekktustu laga Gunnars eru: Bláu augun þín, Þú og ég, Ástarsæla, Heim í Búðardal, Þitt fyrsta bros, Gaggó Vest, Harðsnúna Hanna, Við Reykjavíkurtjörn, Himinn og jörð, og Vetrarsól. 

Tónsmíðar Gunnars voru þó ekki einungis í dægurlagatónlist, heldur kom hann víðar við. Til að mynda samdi hann óperuna Ragnheiði.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson mun jarðsyngja frá Hallgrímskirkju á eftir. Þá mun einvalalið tónlistarfólks koma fram. Pálmi Gunnarsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Dísella Lárusdóttir munu syngja, sem og hinn tólf ára gamli Alex Óli Jónsson, og svo Zakarías Herman Gunnarsson, sonur Gunnars. Þá mun hljómsveit, strengjasveit, og Sönghópur Fríkirkjunnar jafnframt spila í útförinni.

Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur og Egill Eðvarðsson listamaður munu lesa minningarorð.  Það munu synir Gunnars, Zakarías og Karl B. Herman Gunnarsson líka gera.

Líkt og áður segir verður hægt að fylgjast með útförinni í beinni útsendingu, í samstarfi við Símann, hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Árið sem skytturnar fjórar kvöddu

Árið 2026 verður lengi í minnum haft í sögu íslenskrar dægurtónlistar fyrir þau ótrúlegu tímamót að fjórir af höfuðsmiðum íslenskrar sönglagahefðar kvöddu þennan heim, hver af öðrum. Magnús Eiríksson lést í janúar, Björgvin Halldórsson í apríl, Megas í júlí og nú síðast, þann 30. júlí, Gunnar Þórðarson. Megas, Gunnar og Magnús fæddust raunar allir sama ár en allir fjórir tilheyra kynslóð sem lagði óhemjumikið til íslenskrar dægurtónlistar.

Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur

Gunnar Þórðarson er einn ástsælasti tónlistarmaður og lagahöfundur sem Ísland hefur alið. Gunnar var hlédrægur og leyfði tónlistinni að tala fyrir sig. Samkvæmt vinum og fjölskyldu var hann rólyndismaður sem fékk sínu fram, ískaldur töffari og vinnuhestur sem mætti fyrstur til vinnu og fór síðastur heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.