Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2026 07:32 Donald Trump og Gianni Infantino eru mestu mátar. Skemmst er að minnast þess þegar Infantino veitti Trump friðarverðlaun FIFA á síðasta ári. epa/YOAN VALAT Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að það væru skelfileg mistök ef Gianni Infantino yrði gert að hætta sem forseta FIFA.
Spjótin hafa staðið á Infantino síðustu daga eftir misheppnaða tilraun hans til að selja hlut í mótum sambandsins, eins og HM, til einkaaðila. Trump og Infantino eru miklir vinir og Bandaríkjaforseti hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig um mál Infantinos eftir að allt fór í háaloft. „FIFA myndi gera skelfileg mistök ef þeir, af einhverri ástæðu, íhuguðu að skipta Gianni Infantino út,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðla. „Hann er frábær enda nýbúinn að stýra farsælasta HM, fjórum sinnum farsælla en nokkurt annað mót sem haldið hefur verið. Ef hann fer mun það aldrei verða jafn farsælt eða arðbært aftur.“ Heimsmeistaramótið 2026 fór að stærstum hluta fram í Bandaríkjunum en því lauk 19. júlí. Níu dögum seinna bárust fréttir af því að Infantino hygðist stofna félagið FFE (FIFA Forward Enterprise) til að halda utan um mót á vegum sambandsins. Infantino hafði hugmyndir um að selja um tuttugu prósenta hlut í félaginu til einkafjárfesta. Fyrirtækið Thrive Eternal átti að halda utan um fjárfestinguna. Stofnandi þess er Joshua Kushner, bróðir tengdasonar Trumps, Jareds. Hugmyndir Infantinos um einkafjárfestingu í innviðum FIFA mættu mikilli andstöðu og á endanum sá hann sig knúinn til að hætta við allt. Í gær sendu knattspyrnusambönd Asíu, Evrópu og Norður- og Mið-Ameríku frá sér opið bréf þar sem vinnubrögð Infantinos voru harðlega gagnrýnd.
FIFA Donald Trump Tengdar fréttir UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Mikil alvara virðist vera komin í samtal nokkurra álfusambanda í fótboltaheiminum um hvernig framtíðin muni líta út ef þau ákveða að sniðganga keppnir Alþjóðaknattspyrnusambandsins. 10. ágúst 2026 18:02 Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi AFC, Concacaf og UEFA senda opið bréf til aðdáenda fótbolta þar sem verið er að sýna samstöðu gegn vinnubrögðum og tillögum Gianni Infantino, forseta FIFA, að selja heimsmeistaramótið til einkafjárfesta. 10. ágúst 2026 12:31 Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu FIFA gagnrýnir harðlega það sem sambandið segir vera skipulagða aðför með það að markmiði að grafa undan sambandinu og forseta þess Giani Infantino. 9. ágúst 2026 10:03 Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Fótbolti Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Højbjerg hafnaði Newcastle Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Ótrúlegt innkast varð að marki „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell Sjá meira
UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Mikil alvara virðist vera komin í samtal nokkurra álfusambanda í fótboltaheiminum um hvernig framtíðin muni líta út ef þau ákveða að sniðganga keppnir Alþjóðaknattspyrnusambandsins. 10. ágúst 2026 18:02
Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi AFC, Concacaf og UEFA senda opið bréf til aðdáenda fótbolta þar sem verið er að sýna samstöðu gegn vinnubrögðum og tillögum Gianni Infantino, forseta FIFA, að selja heimsmeistaramótið til einkafjárfesta. 10. ágúst 2026 12:31
Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu FIFA gagnrýnir harðlega það sem sambandið segir vera skipulagða aðför með það að markmiði að grafa undan sambandinu og forseta þess Giani Infantino. 9. ágúst 2026 10:03