Huga þurfi líka að heimferðinni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 15:24 Runólfur biðlar til fólks að huga líka að heimferðinni. Vísir/Einar Sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra ráðleggur fólki að huga að heimleið ætli það að ferðast til þess að bera almyrkvann augum. Mikilvægt sé að undirbúa sig vel.
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir fyrst og fremst mikilvægt að vera vel undirbúinn og kynna sér allar upplýsingar vel. „Fara inn á vef Vegagerðarinnar, skoða umferðarskipulag og hvar eru lokanir. Það er einstefna á Snæfellsnesi, það verða takmarkanir á leið út á Látrabjarg. Þannig að leggja snemma af stað og gera ráð fyrir því að það verði einhverjar umferðartafir og reikna einnig með því þegar almyrkvinn er búinn að þá gætu líka myndast umferðartafir,“ sagði hann í hádegisfréttum Bylgjunnar. Ferðin gæti tekið mun lengri tíma en venjulega. „Við höfum verið að hvetja fólk til þess að njóta heima hjá sér, fólk sem býr á vesturhluta landsins,“ sagði Runólfur. „Engu að síður fara einhverjir af stað og þá eru þessar ráðleggingar til þeirra að gefa sér góðan tíma og undirbúa sig vel.“ Stopult netsamband Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar á Vestfjörðum til að bæta farnetssamband á svæðinu. „Það á að vera hægt að hringja neyðarsímtöl og einhverjar bætingar hafa verið gerðar. En til þess að við séum á sama stað og þar eins og annars staðar á landinu á þéttbýlissvæðum þarf að fara í miklu meiri framkvæmdir heldur en gerðar hafa verið núna,“ segir hann. Bæði Neyðarlínan og fjarskiptafélögin hafi ráðist í aðgerðir til að bæta sambandið. „Fólk þarf að reikna með því ef það ætlar að hlaða upp á samfélagsmiðla eða annað að þetta er stopult samband þarna.“
Almannavarnir Almyrkvi 12. ágúst 2026 Látrabjarg Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Sjá meira