Sport

Orðin ó­um­deildur heims­meistari þrátt fyrir ýmis á­föll

Andri Broddason skrifar
Dine Thorslund, danskur hnefaleikakappi, heldur á öllum fjórum heimsmeistaratitlum samtímis.
Dine Thorslund, danskur hnefaleikakappi, heldur á öllum fjórum heimsmeistaratitlum samtímis. Ed Mulholland/Getty Images

Danski hnefaleikakappinn Dina Thorslund heldur nú á öllum fjórum heimsmeistarabeltunum samtímis. Hún er því orðin óumdeildur meistari þrátt fyrir ýmis áföll utan hringsins.

Eftir að hafa unnið Ástralann Cherneka Johnson fékk Dina Thorslund sinn fjórða heimsmeistaratitil í hnefaleikum og heldur nú á öllum titlunum síns þyngdarflokks samtímis. Þetta er gríðarlegt afrek sérstaklega eftir að hafa átt erfitt síðasta ár.

Síðasta sumar komst Thorslund að því að hún væri ólétt og gaf frá sér tvo heimsmeistaratitla til þess að setja meiri vinnu í móðurhlutverkið. Stuttu eftir að hún missti titlana missti hún fóstur. Hún átti eftir að lenda í fleiri áföllum þar sem fyrir stuttu fékk nánasti æfingafélagi hennar, Raven Chapman, heilablóðfall á miðri æfingu og var flutt á spítala.

Í viðtali við TV2 í Danmörku sagðist hún ekki vera viss hvað framtíðin bæri í skauti sér:

„Ég er búin að klára box, ég er með alla titlana. En ég veit ekki enn þá hvort ferillinn minn sé búinn. Ég er búin að ganga í gegnum margt og ég mun skoða hvert næsta markmið verður seinna.“

Hún bætir við að hún ætli að taka ákvörðun í rólegheitum þegar hún er búin að ná sér niður af tilfinningarússíbananum sem síðustu dagar hafa verið. Hún tekur ákvörðun þegar hún er búin að róast niður.

Á sínum ferli hefur hún átt 25 bardaga og unnið þá alla. Níu þeirra hefur hún sigrað með rothöggi.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×