Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar 7. ágúst 2026 15:46 Nýlega birtist gömul ljósmynd í hópnum Gamlar myndir: tóbaks- og sælgætisverslunin Landstjarnan í Austurstræti með stjörnu yfir dyrunum og varning í gluggum. Fallegt hús og saklaus mynd. En Landstjarnan á sér sögu sem er merkilegri en útstillingarnar, því hún rataði í blöðin undir jólin 1917 — fyrir að hafa kveikt ljós. Landstjarnan — tóbaks- og sælgætisverslun í Austurstræti, Reykjavík Fréttaklausan er svohljóðandi: verslunin „bætir mikið úr bæjarstjórnarmyrkrinu“ því gluggar hennar séu „fagurlega uppljómaðir með rafmagni fram á rauða nótt“, auk þess sem það gleðji augað að sjá dýrindisvarninginn sem raðað sé í gluggana fyrir jólin. Bæjarstjórnarmyrkrið — blaðamaðurinn 1917 vissi nákvæmlega hvað hann var að gera og orðið hefur beðið eftir framhaldslífi í rúma öld. Fréttaklausan um Landstjörnuna, birt í blaði 1917 Samhengið var þetta. Veturinn 1917–18, frostaveturinn mikli og kolaskortur á Íslandi. Gasstöð Reykjavíkur, sem lýsti bæinn í krafti einokunarleyfis, átti fullt í fangi með að útvega sér gaskol og grípa þurfti til skömmtunar. Heimilin voru látin ganga fyrir sem var rétt og eðlilegt en verslanir og fyrirtæki máttu sitja í myrkrinu. Og þá gerðist það sem gjarnan gerist. Kaupmenn bæjarins komu sér upp litlum einkarafstöðvum eða fengu tengingar frá slíkum stöðvum í nágrenninu. Þetta var tæknilega séð brot á einokunarleyfi gasstöðvarinnar. En einokunarleyfishafi sem getur ekki afhent vöruna er í heldur veikri stöðu til að banna öðrum að afhenda hana. Gasstöðin gat ekki lýst gluggana og gat þar með ekki heldur bannað að þeir væru lýstir. Skorturinn hafði leyst bannið af hólmi. Afleiðingin varð auglýsing sem ekkert auglýsingabann hefði getað stöðvað. Þennan vetur skinu rafljósin skært í sumum búðargluggum meðan gasljósin voru myrkvuð í öðrum, og hver einasti vegfarandi í Austurstræti sá muninn með berum augum, kvöld eftir kvöld. Besta auglýsing rafmagnsins í Reykjavík var aldrei birt í blaði. Hún hékk í gluggum og ruddi brautina fyrir Elliðaárstöð og rafvæðingu bæjarins fáum árum síðar. Takið eftir röðinni í atburðarásinni því hún er lögmál frekar en tilviljun. Fyrst kemur einokunarleyfið, rökstutt með almannahag, svo kemur skorturinn en þegar einokunarleyfishafinn hættir að geta sinnt hlutverkinu sem réttlætti einokunarleyfið, þá kemur bjargráðið þegar venjulegt fólk leysir vandann framhjá kerfinu. Næst kemur bannið sem enginn treystir sér til að framfylgja, því erfitt er að sekta menn fyrir að kveikja ljós sem einokunarhafinn gat ekki kveikt. Og loks kemur framförin sem allir þykjast síðan alltaf hafa stutt. Eins og lesa má af viðtali við Pál Einarsson borgarstjóra í Reykjavík þótti einokunarverslunin traust og varan góð. Viðtal við Pál Einarsson borgarstjóra um kosti gass og rafmagns Öld síðar er þetta mynstur endurtekið, atriði fyrir atriði, í annarri atvinnugrein. Einokunarsala ríkisins á áfengi, rökstudd með almannahag, lokar verslunum sínum í byggðarlögum úti um land og skilur íbúana eftir þjónustulausa. Netverslanir fylla í skarðið, sumar meira að segja í plássunum sem ríkið yfirgaf. Bannið reynist svo máttlaust í framkvæmd að sjálfur fjármálaráðherra lýsir því yfir að látið verði gott heita á meðan dómskerfið vinnur sína vinnu. Og viðskiptavinirnir, rétt eins og vegfarendurnir í Austurstræti 1917, sjá muninn með berum augum: í öðrum glugganum verðmiðana og úrvalið, í hinum styttri opnunartíma og lokaðar búðir. Þó embættismenn ráðherra telji starfsemina ólöglega þá getur hann ekki bannað samanburð. Afgreiðsla netverslunar með áfengi opnuð í Vínbúðarplássinu á Fáskrúðsfirði, 26. júní 2026 Ásta Hlín Magnúsdóttir/RÚV Sagt er að það eina sem við lærum af sögunni sé að við lærum ekki af henni. Hagsmunaöfl sem ráða hilluplássi ÁTVR hafa að undanförnu varað þjóðina við einyrkjum sem nú sækja að einokunarversluninni og kalla þau markaðsöfl, fjármagnsöfl og peningaöfl. Sagan af Landstjörnunni bendir til annarrar niðurstöðu um hvaða öfl það eru sem breyta gangi hennar. Það voru ekki fjármagnsöfl sem rafvæddu Reykjavík. Það voru kaupmenn sem vildu lýsa glugga og bæjarbúar sem vildu sjá dýrindisvarninginn fyrir jólin. Öflin sem einokunarsinnar óttast mest hafa alltaf verið af þessu tagi: fólk sem vill ljós. Gasstöðin átti sína málsvara sem vöruðu við þeim sem virtu einkaleyfið að vettugi. Sagan hefur ekki haldið nöfnum þeirra til haga. Hún man hins vegar ljósin í gluggum Landstjörnunnar — og bæjarstjórnarmyrkrið sem þau lýstu upp. Höfundur er einn eigenda vínbúðarinnar Santé og kveikir ljós frekar en að bölva myrkrinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netverslun með áfengi Arnar Sigurðsson Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar