Enski boltinn

Liverpool nær munn­legu sam­komu­lagi um kaup á Barcola

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bradley Barcola í leik með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar.
Bradley Barcola í leik með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar. Getty/Sarah Stier

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur náð munnlegu samkomulagi við Paris Saint-Germain um kaup á Bradley Barcola en þessu slær David Ornstein upp í The Athletic í kvöld.

Tilboð upp á 110 milljónir punda hefur verið samþykkt af frönsku Evrópumeisturunum og samkvæmt heimildum Ornstein er verið að ganga frá því.

Bradley Barcola stóð sig vel með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar og er honum ætlað að hjálpa til við að fylla skarðið sem Mohamed Salah skilur eftir sig.

Fimm ára samningur er klár á milli félagsins og leikmannsins. Arsenal hafði áhuga en 23 ára sóknarmaðurinn vildi frekar Liverpool samkvæmt frétt Ornstein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×