Henderson genginn í raðir Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 16:00 Chelsea tilkynnti um samninginn við Jordan Henderson með þessari mynd á miðlum sínum. @ChelseaFC Enski landsliðsmiðjumaðurinn Jordan Henderson hefur skrifað undir samning við Chelsea en þetta er staðfest á miðlum félagsins.
Henderson rifti nýlega samningi sínum við Brentford. Það opnaði dyrnar fyrir því að hann gæti gengið til liðs við Chelsea án greiðslu. Henderson hefur mikla reynslu úr enskum fótbolta. Eftir að hafa hafið feril sinn hjá Sunderland naut hann mikillar velgengni sem fyrirliði Liverpool, þar sem hann vann bæði ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina og fjölda annarra titla. He's here. 👋 pic.twitter.com/exv97kh5K5— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 3, 2026 Eftir tíma sinn hjá Liverpool lék hann með Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu og Ajax í Hollandi áður en hann samdi við Brentford í fyrra. Henderson lék 34 leiki fyrir Brentford og var valinn leikmaður mánaðarins hjá félaginu í september. Eina mark hans fyrir liðið kom í 1-1 jafntefli gegn Leeds í desember. Henderson skrifaði undir tveggja ára samning síðasta sumar en eins og áður segir var honum rift eftir eitt ár. Aðilar voru sammála um þá ákvörðun. Þessi reynslumikli leikmaður var valinn í HM-hóp Englands undir stjórn Thomas Tuchel og skráði sig á spjöld sögunnar sem fyrsti enski karlaleikmaðurinn til að taka þátt í sjö stórmótum. Á meðan á HM stóð varð Henderson fyrir furðulegum meiðslum. Í fagnaðarlátunum eftir að hafa komist áfram gegn Mexíkó tókst miðjumanninum ekki að stökkva yfir auglýsingaskiltin og endaði á því að handleggsbrotna. Hann spilaði skiljanlega ekki meira á mótinu eftir það. Welcoming Jordan to Chelsea! 🎁💙 pic.twitter.com/uv5OImuLc3— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 3, 2026
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Fótbolti Mattías Kjeld valdi KR Íslenski boltinn Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Fótbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira