Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar 4. ágúst 2026 12:30 Þegar þúsundum minka var sleppt úr síðasta minkabúi landsins var eins og samfélagið rankaði skyndilega við sér og áttaði sig á því hversu mikil áhætta fylgir því að rækta ágenga rándýrategund í miklum fjölda. Fyrst var reyndar mikið talað um glæpamennina sem brutust inn og slepptu dýrunum út – eðlilega því það var algjörlega glórulaust og ábyrgðarlaust. En eftir að rykið settist byrjaði fólk að spyrja sig: Er virkilega réttlætanlegt að leyfa slík minkabú? Norðurþing hefur nú bannað loðdýrarækt innan marka sveitarfélagsins og Reykjavíkurborg hefur einnig hafið umræður um bann. Dýravelferðarsjónarmið eru mikilvæg í þessum umræðum þar sem um er að ræða ótamin dýr sem fá hvorki að yfirgefa búrin né uppfylla eðlislægar þarfir sínar en einnig eru umhverfisáhrif stór hluti samtalsins. Þetta eru auðvitað frábærar fréttir fyrir okkur sem nútímasamfélag þar sem dýravelferð og umhverfisvernd eru að verða mikilvægari eftir því sem vitund okkar vex. Loðdýrarækt er á leiðinni út og samkennd og samvitund á leiðinni inn. Allt á réttri leið. En nú skulum við aðeins þysja út. Minkaslysið mun hafa slæm áhrif á umhverfið. Það mun valda fuglalífi og öðrum dýrategundum skaða ef minkarnir ná fótfestu og dreifingu. En það er önnur tegund sem er enn ágengari fyrir náttúruna en minkurinn. Það er mannfólk. Ég læt vera að þylja upp allt það sem maðurinn hefur gert til að hafa neikvæð áhrif á náttúruna síðustu áratugi en nefni þó í þessu samhengi að villt spendýr eru nú aðeins um 5% af samanlögðum lífmassa spendýra á jörðinni. Menn eru um 36% og búfé um 59%. Einnig hafa stofnstærðir dýrategunda fallið gríðarlega hratt síðustu 50 ár. Samkvæmt Living Planet Index hefur meðalstærð vaktaðra stofna villtra hryggdýra minnkað um 73% frá 1970 til 2020. Um leið fer hættan á útdauða tegunda hratt vaxandi. Samkvæmt IPBES er allt að ein milljón dýra- og plöntutegunda nú í útrýmingarhættu, margar innan næstu áratuga. Þetta er ógnvænleg þróun og vert er að skoða fimm helstu drifkrafta eyðileggingarinnar: 1. Breytt landnotkun (búsvæðaeyðing): Um 75% af landsvæði jarðar hefur verið gerbreytt af manninum. Skógar eru höggnir og mýrlendi þurrkað upp til að rýma fyrir landbúnaði og beit, þar á meðal umfangsmikilli framleiðslu á kjöti, mjólk og dýrafóðri. 2. Ofnýting og rányrkja: Beinar veiðar á villtum dýrum og ósjálfbærar fiskveiðar hafa gengið nærri fjölmörgum stofnum. Samkvæmt nýjasta mati FAO eru rúmlega 35% metinna sjávarfiskistofna ofveiddir. 3. Loftslagsbreytingar: Hröð hlýnun af völdum gróðurhúsalofttegunda breytir lífskilyrðum hraðar en dýr ná að aðlagast. Sem dæmi má nefna ísbirni og kóralrif. 4. Mengun: Plastmengun í höfum hefur tífaldast síðan 1980. Áburðarnotkun í landbúnaði skapar „dauð svæði“ í ám og strandsjó þar sem sáralítið líf getur þrifist vegna súrefnisskorts. 5. Ágengar framandi tegundir: Maðurinn flytur óvart eða viljandi dýrategundir á ný svæði (t.d. minkinn á Íslandi), sem geta útrýmt innlendum tegundum eða raskað staðbundnum vistkerfum. En víkjum nú aðeins aftur að jákvæðu hlið minkamálsins. Uppnámið sem varð í samfélaginu þegar minkarnir sluppu, og umhyggjan fyrir íslensku dýralífi sem þar birtist, veitir innsýn í hjörtu landsmanna. Okkur er alls ekki sama. Við höfum einlægan vilja til að vernda villtar dýrategundir og vistkerfið sem þær tilheyra. Það finnst mér fallegt. Á bak við deilur um Evrópusambandið og skítkast í kommentakerfum er kærleiksrík þjóð sem reiðist heiftarlega þegar villtu dýralífi er ógnað. Það yljar mér um hjartarætur. Og það besta af öllu er að við höfum fimm skýrar leiðir til að styðja við villt dýralíf, ekki bara á Íslandi heldur á jörðinni allri: 1. Landnotkun: Sleppa dýraafurðum og minnka álag á landsvæði jarðar. Rannsóknir benda til þess að ef heimurinn færðist yfir á plöntumiðað fæðukerfi gæti landþörf landbúnaðar minnkað um allt að 75%. Það eru 3 milljarðar hektara af landi. Það samsvarar svæði á stærð við Norður-Ameríku og Brasilíu samanlagt. 2. Ofnýting: Hætta að ofnýta veiðistofna og stefna að því að villt dýralíf fái að lifa án þess að vera veitt fyrir mannlega neyslu eða veiðiáráttu. 3. Loftslagsbreytingar: Sleppa dýraafurðum til að hægja á hlýnun jarðar, því að búfjárrækt veldur verulegum hluta af losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. 4. Mengun: Nota minna plast og sleppa dýraafurðum til að minnka mengun, áburðarnotkun og næringarefnaflæði í ár og strandsjó. 5. Ágengar tegundir: Banna loðdýrarækt til að minnka hættu á að ágengar tegundir dreifi sér á svæði þar sem þær geta raskað vistkerfum. Það er alltaf jákvæð hlið á öllum málum. Við þurfum bara að sjá tækifærin sem koma okkur nær því sem við öll viljum. Meiri samkennd og samvitund Höfundur situr í stjórn Samtaka um dýravelferð á Íslandi og er bjartsýnismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Minkum sleppt í Mosfellsdal Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar