Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. ágúst 2026 18:53 Tugir létu lífið á sundi fram hjá landamæragirðingum í gær. AP Ráðherrar dóms- og innanríkismála aðildarríkja Evrópusambandsins munu funda í gegnum fjarfundabúnað á þriðjudaginn til að ræða þann mikinn fjölda farandsfólks sem gerði tilraun til að komast til spænsku hólmlendunnar Ceuta í vikunni.
Micheál Martin forsætisráðherra Írlands greinir frá fundinum á samfélagsmiðlum í kvöld en Írlands gegnir formennsku í ráðherraráði sambandsins. Mikill fjöldi aðildarríkja hafði kallað eftir viðræðum af þessu tagi frá því að myndir fóru að berast frá Ceuta þar sem tugir þúsunda reyndu að synda fram hjá landamæragirðingum. Fimmtíu og sjö létust í örtröðinni sem myndaðist. Viðbrögð Evrópuríkja hafa ekki staðið á sér. Ítalir felldu úr gildi Schengen-samkomulagið gagnvart Spánverjum og Giorgia Meloni forsætisráðherra kallaði eftir því að Spánn yrði tímabundið settur út af samkomulaginu. Aðrir leiðtogar tóku í sama streng til að mynda Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur. „Við erum áfram í nánu sambandi við öll aðildarríkin og stofnanirnar og höldum áfram að fylgjast með stöðu mála,“ segir Micheál Martin forsætisráðherra Írlands í færslunni. Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar óskaði eftir því að boðað yrði til slíks fundar í dag. Í bréfi til framkvæmdastjórnar ESB sagðist Sánchez áhyggjufullur vegna viðbragða annarra leiðtoga við ástandinu sem skapaðist í Ceuta. Flestir hefðu kallað eftir stuðningi og samstöðu með Spáni en aðrir hefðu nýtt tækifærið til að ráðast að Spáni og kalla eftir því að ríkinu yrði vikið tímabundið úr Schengen-samstarfinu. Hann var berorður í bréfinu þar sem hann segir viðbrögðin meðal annars stjórnast af fordómum og falsfréttum. Stjórnvöld á Spáni sögðu í dag að enginn hafi komið sjóleiðina til meginlands Evrópu í gær og að vinna stæði yfir við að vísa því fólki sem komst til Ceuta aftur til Marokkó.
Evrópusambandið Marokkó Spánn Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólakrökkum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira