Guðmundur Felix kominn með krabbamein Eiður Þór Árnason skrifar 1. ágúst 2026 13:02 Guðmundur Felix Grétarsson með nýju handleggina sína. Vísir/Vilhelm Guðmundur Felix Grétarsson hefur greinst með krabbamein í nefi og gerir ráð fyrir því að það þurfi að fjarlægja það. Hann fékk fregnirnar í fyrradag. „
Það er búið að taka sýni úr því og þetta er svolítið aggressívt. Ég er búinn að fara í segulómtæki sem sýndi að þetta væri bara staðbundið, komið að beininu og brjóskinu en ekki í gegnum það. Þannig að þeir gera ráð fyrir að taka af nefið og sentímeter umfram svo það er nefið og aðeins af vörinni,“ segir hann í samtali við Vísi. Ekki séu vísbendingar um að krabbameinið hafi dreift sér en hann eigi eftir að fara í jáeindaskanna til að staðfesta þessa tilgátu læknanna. Berst við þetta eins og hvert annað Guðmundur hefur vakið athygli fyrir það hvernig hann tókst á við það að missa handleggi sína í slysi árið 1998 en hann hefur öðlast nýtt líf eftir að handleggir voru græddir á hann í tímamótalæknisaðgerð. Hann segist í samtali við Vísi hafa verið á góðu róli að undanförnu, hafa stofnað fyrirtæki og þetta setji mögulega strik í reikninginn. Þrátt fyrir það er hann jákvæður og hyggst takast á við þetta eins og aðrar áskoranir í sínu lífi. „Þetta er bara það sem það er. Það eru það margir í mínu lífi sem mér þykir vænt um að það er bara ekkert í boði að vera eitthvað að gefast upp. Maður berst við þetta eins og hvað annað.“ Fréttin er í vinnslu og von er á ítarlegra viðtali við Guðmund.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Sjá meira