Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Jón Þór Stefánsson skrifar 30. júlí 2026 23:32 Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Skiptstjóri þess var handtekinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir að áhöfnin á Hval 9 hafi óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr í kvöld þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík. „Á sjötta tímanum í dag fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að hvalveiðiskipinu Hval 9. Áhöfnin á Hval 9 tilkynnti Landhelgisgæslunni að skipinu hefði verið ógnað. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en engin svör bárust frá skipinu. Þá hélt þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, þegar í stað á vettvang og bað áhöfn Bandero að yfirgefa svæðið en við því var ekki orðið. Jafnframt var áhöfnin á varðskipinu Freyju kölluð út. Þegar varðskipið kom á staðinn skömmu síðar var skipstjóra Bandero fyrirskipað að stöðva vélar skipsins, en skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá kölluð út til að flytja sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í varðskipið Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum. Á tólfta tímanum í kvöld fóru sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar um borð í Bandero, handtóku skipstjóra þess og tóku yfir stjórn skipsins. Bandero verður fært til hafnar í Reykjavík en gert er ráð fyrir að skipið komi til Sundahafnar síðar í kvöld.“
Landhelgisgæslan Lögreglumál Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira