ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar 30. júlí 2026 16:30 Ég hef tekið eftir því víða á netinu að fólk er farið að styðjast mikið við gervigreindina í skrifum sínum og rökræðum. Gervigreindin getur verið nytsamlegt tæki við gagnavinnslu, sem uppflettirit og við margar aðrar aðgerðir. Höfum það þó í huga að gervigreindin er ennþá að slíta barnsskónum, og það er kannski best að horfa á hana sem barn, hún getur haft hluti eftir og ef hún er spurð og veit ekki svarið, þá er hætta á að hún bulli eitthvað svar. Það er því nauðsynlegt að staðfesta það sem gervigreindin segir þér, áður en þú vísar í það eins og staðreyndir. Ég fór að gamni um daginn og spurði gervigreindina aðeins um ESB. Það voru mörg gagnleg svör sem ég fékk og sum síður en svo. Það voru sérstaklega tveir hlutir sem ég man sérstaklega eftir. Sá fyrri sneri að aðlögun umsóknarríkja að ESB. En ég spurði forritið hvort að ríki þyrftu að aðlaga sig að ESB á meðan á umsóknarferlinu stæði. Gervigreindin hugsaði sig um í stutta stund og kom svo með langt og þvælt svar þar sem farið var yfir viðræður Noregs og Danmörku, geri ráð fyri að hún hafi vilja miða við sambærileg lönd. Þar kom fram að það hefðu verið viðræður en ekki beint aðlögun á meðan þeim stóð. Ég spurði hana hvort að reglum hafi ekki verið breytt eftir að þessi ríki sóttu um á sínum tíma og þá kom þetta klassíska, jú auðvitað, þú hefur rétt fyrir þér og vísaði þá í breytingar sem urðu í kring um aldamótin sem gera nýjum umsóknaríkjum það skylt að aðlaga sig að regluverkinu samhliða viðræðum svo þau verði tilbúin að ganga inn í sambandið að þeim loknum. Annað dæmi voru þessar blessuðu varanlegu undanþágur. Ég spurði hvort að umsóknarríki gætu fengið varanlegar undanþágur þegar þær gengu inn í ESB. Gervigreindin var aftur snögg að hugsa og spýtti út úr sér texta á augabragði. Það væri mögulegt að fá en það væri sjaldgæft og erfitt að fá slíkar undanþágur. Svo benti hún á Danmörku, Bretland og Svíþjóð og að þau hefðu öll fengið undanþágu frá því að taka upp evruna. Mér fannst þetta forvitnilegt enda hafði ég lesið um breytingu sem varð á þessu ferli og benti henni á að þessi dæmi væru nú öll frá síðustu öld og spurði hvort að reglunum hefði ekki verið breytt. Það var ekki að spyrja að því, hún svaraði skjótt og játaði því að ég hefði rétt fyrir mér að reglunum hefði verið breytt í kring um aldarmótin og ekkert ríki hefði fengið varanlegar undanþágur frá þeirri stefnubreytingu hjá ESB. Það er mikilvægt að reyna eftir bestu getu að skoða frumgögn ef hægt er. Það er frábært að notast við gervigreindina til að hjálpa þér við að fræðast en fólk verður að gæta sín á að ekki er allt rétt sem kemur frá gervigreindinni og stundum þarf hún jafnvel leiðsögn eða betri skilgreiningu á spurningum. Það gleður mig þó þegar fólk er að kynna sér ESB og hvort það sé vit í því að sækja um aðild að sambandinu. Eina leiðin til að taka skynsama ákvörðun í atkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst er að kynna sér vel hvað ESB er og mynda sér skoðun útfrá því. Ég er búinn að gera mitt besta í því og mun segja nei þann 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Gervigreind Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar