Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. júlí 2026 10:39 Lauren Pisciotta sakaði Kanye West um kynferðislega áreitni, samningsbrot og nauðgun en þau hafa nú gert dómsátt í málinu. Rapparinn Kanye West hefur gert dómsátt við fyrrverandi aðstoðarkonu sína, Lauren Pisciotta, eftir að hún hafði sakað hann um kynferðislega áreitni, ólöglega uppsögn, brot á samningi og nauðgun.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá tíðindunum og byggir þau á dómsskjölum sem lögfræðingar Pisciotti lögðu fram fyrir dómara í Los Angeles á þriðjudaginn. Þar kemur fram að um sé að ræða „skilyrðislausa“ dómsátt og að lögð verði fram beiðni um að málinu verði vísað frá innan 45 daga frá 23. júlí. Nákvæmt innihald dómsáttarinnar liggur hins vegar ekki fyrir. „Málið hefur verið leyst,“ sagði Arick Fudali, lögfræðingur Pisciotta, í yfirlýsingu sem var send á fjölmiðla vestanhafs. Áreitni, nauðgun og samningsbrot Pisciotta höfðaði fyrst mál gegn West í júní árið 2024 og sakaði hann þá um kynferðislega áreitni, ólöglega uppsögn og samningsbrot meðan hún starfaði sem aðstoðarkona hans frá 2021 til 2022. Einnig hafi hann sent henni óþægileg skilaboð, þrýst á hana að afklæðast og fróað sér meðan þau ræddu saman í símann. West hafnaði ásökununum og lögfræðingur rapparans sakaði Pisciotta um fjárkúgun meðan talsmaður West sagði að henni hefði verið sagt upp því hún væri ekki starfinu vaxin. Í október 2024 bættust fleiri ásakanir við málsóknina. Pisciotta sagði West hafa „þuklað, þreifað, gripið í og þvingað sig inn í og ofan á“ hana þó nokkrum sinnum án hennar samþykkis. Hún sagðist einnig hafa verið byrlað ólyfjan og verið naugðað meðan West var í upptökuveri með Sean „Diddy“ Combs. Sumarið 2025 bætust við málsóknina ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi og nauðgun. Pisciotta sagði West hafa reynt að troða fingrum sínum inn um leggöng hennar, kysst hana og þvingað hana til að veita sér munnmök í vinnuferð árið 2021. West hafnaði öllum ásökunum.
Bandaríkin Mál Kanye West Hollywood Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Kanye West, eða Ye, greiddi fyrir heilsíðuauglýsingu í Wall Street Journal sem kom út í dag, þar sem hann baðst afsökunar á framferði sínu undanfarin ár. Yfirlýsingin sem birt var er titluð „Til þeirra sem ég hef sært“ og beinir hann afsökunarbeiðni sinni sérstaklega til þeldökkra Bandaríkjamanna og gyðinga. 26. janúar 2026 20:33 Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Kanye West, eða Ye, greiddi fyrir heilsíðuauglýsingu í Wall Street Journal sem kom út í dag, þar sem hann baðst afsökunar á framferði sínu undanfarin ár. Yfirlýsingin sem birt var er titluð „Til þeirra sem ég hef sært“ og beinir hann afsökunarbeiðni sinni sérstaklega til þeldökkra Bandaríkjamanna og gyðinga. 26. janúar 2026 20:33