Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. júlí 2026 15:44 Á OnlyFans-síðu vísindamannnanna má finna krúttlegt myndefni af múrmeldýrum. Daniel Blumenstein Hópur vísindamanna við UCLA-háskóla ákvað að stofna Onlyfans-síðu til að safna fjármagni fyrir rannsóknir í kjölfar mikils niðurskurðar til vísindastarfs í Bandaríkjunum. Á síðunni er ekki að finna myndefni af mannfólki heldur múrmeldýrum.
Vísindamenn við líffræðirannsóknarstofuna í Klettafjöllum (e. Rocky Mountain Biological Laboratory) hafa verið að rannsaka gulmaga múrmeldýr (Marmota flaviventer) í Klettafjöllunum í Kóloradó síðan árið 1962. Rannsóknin er næstelsta múrmeldýrarannsókn í heiminum og geymir mikilvægar upplýsingar um þróun stofnsins og viðbröð hans við umhverfisbreytingum. Hins vegar er slík rannsókn kostnaðarsöm og eftir að ríkisstjórn Donalds Trump skar niður ríkisstyrki til vísindastofnana í Bandaríkjunum þurftu vísindamennirnir að safna sjálfir fyrir rannsókninnni. Fótógenískt múrmeldýr. Þaðan kom hugmyndin að því að selja efni með múrmeldýrum á áskriftarsíðunni Onlyfans. Vefurinn var stofnaður árið 2016 og hefur helst verið notaður af fólki til að selja erotískt myndefni til áskrifenda. „Ég eyði miklum tíma í að bíða eftir því að múrmeldýr geri eitthvað og fékk þessa hugmynd einn rólegan morgun,“ segir Daniel Blunmstein, prófessor í vistfræði og þróunarlíffræði við UCLA, um OnlyFans-verkefnið við vísindavefinn Live Science. Onlyfans-síða múrmeldýranna, OnlyMarms eins og vísindamennirnir kalla hana, fór í loftið 17. júní síðastliðinn og hefur sankað að sér nokkrum tugum áskrifenda. Það er þó bara dropi í hafið en vísindamennirnir vona að síðan muni vekja athygli og áhuga fólks á rannsóknunum View this post on Instagram A post shared by RMBL Marmot Project (@rmblmarmotproject) „Við erum að reyna þetta því við erum vonsvikin með gríðarlega erfitt styrkjaumhverfi. Ef við erum heppin getum við safnað pening fyrir birgðir og starfskostnað. En það mun þó ekki koma í staðinn fyrir ríkisstyrki sem hafa knúið áfram uppgötvanir í Bandaríkjunum síðan á sjötta áratugnum, nema við verðum mjög heppin,“ sagði Blumenstein. Ekki er þó um að ræða erótískt efni, líkt og sést alla jafna á OnlyFans, heldur sakleysislegt myndefni af múrmeldýrum að leika sér og vera krúttleg.
Bandaríkin Vísindi Donald Trump OnlyFans Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira