Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar 28. júlí 2026 09:03 Fyrir nokkrum dögum varð stærsti íbúðabruni í nútímasögu Noregs þegar eldur breiddist hratt um íbúðahverfi í Krokstadelva við Drammen. Á örfáum klukkustundum misstu hundruð manns heimili sín og yfir fjögur hundruð íbúar voru fluttir á brott. Eldurinn barst síðan í gróður og slökkvilið, almannavarnir og fjölmargar aðrar viðbragðseiningar í Noregi unnu dögum saman við því að ná tökum á aðstæðum. Þetta gerðist ekki í Suður Evrópu. Þetta gerðist í Noregi. Munum við eftir þvi þegar við vorum að bjarga Guðmundarlundi? Samhliða þessu hafa gróðureldar geisað víða um Evrópu. Á hverju sumri sjáum við myndir af fólki yfirgefa heimili sín, vegum lokað og heil samfélög lömuð á örfáum klukkustundum. Það sem áður þótti óvenjulegt virðist vera að verða nýr veruleiki. Þegar rætt er um gróðurelda snýst umræðan oft um loftslagsbreytingar. Það er mikilvægt. En það má ekki gleyma því að þetta eru líka stór öryggismál. Þegar eldur leggur heilt hverfi í rúst reynir ekki aðeins á slökkviliðið. Atburðurinn í Drammen sýnir hversu hratt samfélag getur farið úr eðlilegu ástandi yfir í neyðarástand. Það sem hófst sem eldur í einu húsi varð á skömmum tíma að einni stærstu björgunaraðgerð sem Norðmenn hafa staðið frammi fyrir um árabil. Á Íslandi höfum við hingað til talið gróðurelda vera vandamál annarra landa. En síðustu ár höfum við séð stærri sinu og gróðurelda en áður og loftslagið heldur áfram að breytast, líkt og þegar við vorum að bjarga Guðmundarlundi. Það þýðir ekki að við munum upplifa sömu atburði og við Miðjarðarhafið, eða í Noregi en það þýðir að við þurfum að endurmeta hvernig við metum áhættu og hvernig við undirbúum samfélagið. Við eigum ekki að bíða eftir því að stór atburður verði hér til að hefja umræðuna eða bæta viðbragðið. Samfélagsöryggi snýst ekki um að spá fyrir um framtíðina heldur að vera undirbúin og tilbúin þegar óvæntir atburðir verða. Reynslan sýnir að það sem einu sinni þótti óhugsandi getur orðið að veruleika á örfáum klukkustundum. Kannski er það mikilvægasti lærdómurinn frá Drammen. Höfundur er öryggisstjóri og sérfræðingur í öryggisstjórnun Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gróðureldar Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Fyrir nokkrum dögum varð stærsti íbúðabruni í nútímasögu Noregs þegar eldur breiddist hratt um íbúðahverfi í Krokstadelva við Drammen. Á örfáum klukkustundum misstu hundruð manns heimili sín og yfir fjögur hundruð íbúar voru fluttir á brott. Eldurinn barst síðan í gróður og slökkvilið, almannavarnir og fjölmargar aðrar viðbragðseiningar í Noregi unnu dögum saman við því að ná tökum á aðstæðum. Þetta gerðist ekki í Suður Evrópu. Þetta gerðist í Noregi. Munum við eftir þvi þegar við vorum að bjarga Guðmundarlundi? Samhliða þessu hafa gróðureldar geisað víða um Evrópu. Á hverju sumri sjáum við myndir af fólki yfirgefa heimili sín, vegum lokað og heil samfélög lömuð á örfáum klukkustundum. Það sem áður þótti óvenjulegt virðist vera að verða nýr veruleiki. Þegar rætt er um gróðurelda snýst umræðan oft um loftslagsbreytingar. Það er mikilvægt. En það má ekki gleyma því að þetta eru líka stór öryggismál. Þegar eldur leggur heilt hverfi í rúst reynir ekki aðeins á slökkviliðið. Atburðurinn í Drammen sýnir hversu hratt samfélag getur farið úr eðlilegu ástandi yfir í neyðarástand. Það sem hófst sem eldur í einu húsi varð á skömmum tíma að einni stærstu björgunaraðgerð sem Norðmenn hafa staðið frammi fyrir um árabil. Á Íslandi höfum við hingað til talið gróðurelda vera vandamál annarra landa. En síðustu ár höfum við séð stærri sinu og gróðurelda en áður og loftslagið heldur áfram að breytast, líkt og þegar við vorum að bjarga Guðmundarlundi. Það þýðir ekki að við munum upplifa sömu atburði og við Miðjarðarhafið, eða í Noregi en það þýðir að við þurfum að endurmeta hvernig við metum áhættu og hvernig við undirbúum samfélagið. Við eigum ekki að bíða eftir því að stór atburður verði hér til að hefja umræðuna eða bæta viðbragðið. Samfélagsöryggi snýst ekki um að spá fyrir um framtíðina heldur að vera undirbúin og tilbúin þegar óvæntir atburðir verða. Reynslan sýnir að það sem einu sinni þótti óhugsandi getur orðið að veruleika á örfáum klukkustundum. Kannski er það mikilvægasti lærdómurinn frá Drammen. Höfundur er öryggisstjóri og sérfræðingur í öryggisstjórnun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar