Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar 28. júlí 2026 06:31 Þann 26. júlí birtist á Vísi skoðanagrein eftir Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í Finnlandi. Þar reynir hann að sannfæra lesendur um að varanlegar undanþágur standi Íslandi til boða í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, komi til þeirra. Dæmið sem Ekström nefnir varðar fremur smávægilegt atriði, það er að Álandseyjar — samfélag um 30.000 manna — þurfi ekki að greiða virðisauka- og vöruskatta af sölu varnings í siglingum milli Álandseyja og nágrannaríkja. Það hljóta allir að sjá að þetta er engan veginn sambærilegt við það að Evrópusambandið leyfði aðildarríki að halda öllum sjávarútvegi sínum — helstu atvinnugrein sinni í gegnum árin — utan yfirráða Evrópusambandsins. Þvert á móti höfum við sönnunargögn þess efnis að undanþága frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni sé ekki eitthvað sem Evrópusambandið hefur verið reiðubúið að veita. Grænland, Noregur og Írland eru öll dæmi um það. Bent hefur verið á Möltu í þessu samhengi, en þar er einungis um að ræða takmörkun á því hvers konar skip fá að veiða við strendur ríkisins, í þágu verndarsjónarmiða. Við vitum sömuleiðis að mörg önnur aðildarríki myndu vilja sambærilega undanþágu ef Ísland fengi hana. Þau ríki gætu þá haldið inngöngu Íslands í gíslingu nema þau fengju sjálf sams konar undanþágu. Enn fremur ber að halda því til haga að 32 ár eru liðin síðan þessi litla undanþága var veitt. Síðan þá hefur Evrópusambandið gjörbreyst og áherslur sambandsins sömuleiðis. Því er ekki hægt að fullyrða að Evrópusambandið sé enn reiðubúið að veita slíkar undanþágur. Höfundur er tölvunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Þann 26. júlí birtist á Vísi skoðanagrein eftir Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í Finnlandi. Þar reynir hann að sannfæra lesendur um að varanlegar undanþágur standi Íslandi til boða í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, komi til þeirra. Dæmið sem Ekström nefnir varðar fremur smávægilegt atriði, það er að Álandseyjar — samfélag um 30.000 manna — þurfi ekki að greiða virðisauka- og vöruskatta af sölu varnings í siglingum milli Álandseyja og nágrannaríkja. Það hljóta allir að sjá að þetta er engan veginn sambærilegt við það að Evrópusambandið leyfði aðildarríki að halda öllum sjávarútvegi sínum — helstu atvinnugrein sinni í gegnum árin — utan yfirráða Evrópusambandsins. Þvert á móti höfum við sönnunargögn þess efnis að undanþága frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni sé ekki eitthvað sem Evrópusambandið hefur verið reiðubúið að veita. Grænland, Noregur og Írland eru öll dæmi um það. Bent hefur verið á Möltu í þessu samhengi, en þar er einungis um að ræða takmörkun á því hvers konar skip fá að veiða við strendur ríkisins, í þágu verndarsjónarmiða. Við vitum sömuleiðis að mörg önnur aðildarríki myndu vilja sambærilega undanþágu ef Ísland fengi hana. Þau ríki gætu þá haldið inngöngu Íslands í gíslingu nema þau fengju sjálf sams konar undanþágu. Enn fremur ber að halda því til haga að 32 ár eru liðin síðan þessi litla undanþága var veitt. Síðan þá hefur Evrópusambandið gjörbreyst og áherslur sambandsins sömuleiðis. Því er ekki hægt að fullyrða að Evrópusambandið sé enn reiðubúið að veita slíkar undanþágur. Höfundur er tölvunarfræðingur.
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar