Sport

Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíu­leika

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sean McCann er hörkusundmaður en til hægri sést hann með föður sínum í kringum hvarf stóru systur Madeleine McCann.
Sean McCann er hörkusundmaður en til hægri sést hann með föður sínum í kringum hvarf stóru systur Madeleine McCann. Getty/amie Squire/Christopher Furlong

Sean McCann, litli bróðir Madeleine McCann, er að skapa sér feril sem sundmaður og hefur unnið sér sæti í skoska sundlandsliðinu.

Hinn 21 árs gamli Sean keppir í fyrsta sinn með landsliðinu á Samveldisleikunum.

Madeleine McCann var tæplega fjögurra ára þegar hún hvarf úr hótelherbergi í Praia da Luz í Portúgal árið 2007. Hún fannst aldrei og atvikinu er oftast lýst sem þekktasta mannshvarfi nútímasögunnar.

Tvö yngri systkini McCann – tvíburarnir Sean og Amelie – eru orðin 21 árs og Sean McCann er fær sundmaður.

McCann keppir í skriðsundi í nokkrum lengri vegalengdum og er fulltrúi Skotlands á Samveldisleikunum þar sem faðir hans, Gerry, fæddist í Glasgow.

Hann vonast til þess að fyrsta þátttaka hans á Samveldisleikunum muni hjálpa honum á leiðinni á Ólympíuleikana 2028 í Los Angeles.

Í Instagram-myndbandi sem Loughborough Swimming birti á Instagram í fyrra sagði McCann frá markmiði sínu til að keppa á Samveldisleikunum og metnaði sínum til að komast á Ólympíuleikana. Hann útskýrði einnig hvernig það kom til að hann byrjaði að synda.

„Þegar ég var átta ára fór mamma með mig í Loughborough Town-sundfélagið og ég hataði það í fyrstu og vildi ekki fara þangað. En eftir smá tíma fór mér að líka það og ég er enn hér,“ sagði McCann.

Hann hefur helgað sig sundinu síðan hann var ellefu ára.

„Þetta eru meira en tuttugu tímar af æfingum á viku,“ sagði hann.

Samveldisleikarnir 2026 fara fram í Glasgow frá 23. júlí til 2. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×