Sport

Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlutirnir hafa ekki verið að ganga upp hjá ÍA í sumar.
Hlutirnir hafa ekki verið að ganga upp hjá ÍA í sumar. vísir/anton

Besta deild karla var til umræðu í Besta sætinu í dag enda afar áhugaverð umferð sem var að klárast.

Aron Einar Gunnarsson átti hina fullkomnu heimkomu er hann fór fyrir liði Þórs sem varð fyrst til þess að skella meisturum Víkings.

Það virðist lítið gaman að vera í Val þessi misserin en ekki er sömu að segja hjá Fram þar sem stemningin er í algleymi.

Sumarkraftaverkið kom loks í Frostaskjólinu er KR hélt loksins hreinu en það gerðist síðast fyrir tæpu ári. KR heldur áfram að salla inn mörkum og mikil stemning þar en andleysi Stjörnunnar var átakanlegt.

Keflavík er að slá í gegn og pakkaði ÍA saman. Það er farið að hitna undir þjálfara ÍA, Lárusi Orra, og Besta sætið veltir því upp hversu heitt sé undir þjálfaranum.

Svo fór dómarinn í Krikanum illa með Blikana í gær sem áttu meira en eitt stig skilið.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×