Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 16:02 Stórar gröfur voru mættar til að rífa upp grasið á Dallas-leikvanginum. Heimsmeistaramótinu í fótbolta lauk um helgina en löngu fyrir úrslitaleikinn voru starfsmenn leikvanga mótsins byrjaðir að rífa niður allt sem minnti á mótið.
Dallas-völlurinn hýsti níu leiki á HM í ár eða fleiri en nokkur annar leikvangur. Hann heitir í daglegu tali „AT&T Stadium“ en mátti ekki heita það meðan á mótinu stóð vegna reglna Alþjóðaknattspyrnusambandsins og breytti nafni sínu tímabundið í „Dallas-leikvangurinn“. Þessir níu leikir á Dallas-vellinum voru fimm leikir í riðlakeppni, tveir leikir í 32-liða úrslitum, einn leikur í 16-liða úrslitum og einn undanúrslitaleikur. Fljótlega eftir síðasta leikinn, undanúrslitaleik Spánar og Frakklands, hófu starfsmenn leikvangsins að rífa upp grasið af vellinum og sjá til þess að allar AT&T-merkingarnar fengju að sjá dagsljósið á nýjan leik. NFL-félagið Dallas Cowboys spilar á leikvanginum en leikir þess fara ekki fram á náttúrulegu grasi heldur gervigrasi. Það styttist í nýtt NFL-tímabil og starfsmenn drifu því strax í að moka náttúrulega grasinu út af vellinum og undirbúa völlinn fyrir lagningu gervigrassins. Það er samt sérstakt að sjá myndirnar hérna fyrir neðan þar sem gröfur og vinnuvélar eru á fullu að moka burtu hágæða HM-grasi af vellinum. View this post on Instagram A post shared by @footballterminal_
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Fleiri fréttir Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Sjá meira