Golf

Sá þriðji sem jafnar vallarmetið

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ryan Fox fór hringinn á 62 höggum á Royal Birkdale vellinum.
Ryan Fox fór hringinn á 62 höggum á Royal Birkdale vellinum. David Cannon/Getty Images

Ryan Fox átti frábæran hring á Opna breska meistaramótinu og jafnaði vallarmetið á Royal Birkdale vellinum þegar hann kom í hús á 62 höggum. Hann er sá þriðji á mótinu sem jafnar vallarmetið og situr nú jafn Lucas Herbert í efsta sæti stöðutöflunnar.

Lucas Herbert varð fyrstur til að jafna vallarmetið í gær og Sam Burns fylgdi honum fljótt eftir. Ólíkt þeim tveimur fékk Ryan Fox skolla á sínum hring. 

Fox fór fyrri níu holurnar á 29 höggum, einu höggi meira en Herbert. Hann lækkaði sig enn frekar með fugli á tíundu holu en eftir tvö pör skellti hann í skolla á þrettándu holu. Þá virtist vallarmetið vera úr augsýn en Fox átti eftir að ná þremur fuglum á síðustu fimm holunum til að jafna metið.

Með frammistöðu sinni í dag stökk Fox upp um 51 sæti á stöðutöflunni. Hann var á pari eftir fyrstu tvo dagana en er nú átta höggum undir pari, jafn Lucas Herbert í efsta sæti mótsins.

Herbert leggur af stað á sinn hring innan skamms en þeir eru báðir í séns á að vinna risamót í fyrsta sinn á ferlinum.

Xander Schauffele var með Fox í holli og spilaði sömuleiðis fínasta hring í dag. Schaufelle fór á 66 höggum, fjórum minna en Fox, og stökk upp um 42 sæti í 10. sæti mótsins.


Tengdar fréttir

Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti

Ótrúlegar senur voru á Opna breska risamótinu í golfi þegar tveir kylfingar jöfnuðu vallarmet Royal Birkdale-vallarins þar sem mótið er haldið. Lucas Herbert jafnaði vallarmetið og stuttu seinna gerði Sam Burns slíkt hið sama.

Stuttu pútti frá besta hring sögunnar

Ástralinn Lucas Herbert náði aðeins að jafna besta hring í sögu risamótanna í golfi, þegar hann jafnaði vallarmet á Royal Birkdale vellinum með 62 högga hring. Hann var hársbreidd frá því að slá metið en klikkaði á metra löngu pútti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×