Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. júlí 2026 09:36 Tomas Tuchel svaraði fyrir sig eftir tap Englands gegn Argentínu á blaðamannafundi í gærkvöldi í Miami. Kevin C. Cox/Getty Images Tomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands axlar ábyrgð á 2-1 tapi liðsins gegn Argentínu í undanúrslitaleik HM en segist ekki sjá eftir ákvörðunum sínum.
Sérfræðingar, fyrrum leikmenn og meira að segja forseti Bandaríkjanna hafa gagnrýnt þjálfarann fyrir upplegg hans í leiknum og skiptingar sem hann gerði. England náði 1-0 forystu á 55. mínútu með marki Anthony Gordon en eftir það spilaði liðið lítinn sem engan sóknarleik. Tuchel skipti þremur varnarmönnum inn á en þurfti svo að snúa vörn í sókn þegar Argentína komst 2-1 yfir. 🚨🚨🎙️| Donald Trump on Harry Kane and Thomas Tuchel’s defensive approach:pic.twitter.com/RuVGAK2lHa— CentreGoals. (@centregoals) July 17, 2026 Á blaðamannafundi í aðdraganda bronsleiksins gegn Frakklandi stóð Tuchel á sínu. „Ég sé ekki eftir ákvörðunum mínum, því mér fannst við verða of aðgerðalausir. Mér fannst skriðþunginn í leiknum hafa snúist við og ég reyndi að hjálpa liðinu mínu. Ég reyndi að styðja við það. „Ég tók nokkrar ákvarðanir og treysti á eðlisávísun mína, innsæi, reynslu og keppnisskap. Ég tók ákvörðunina til að hjálpa liðinu og ná fram úrslitum. Við náðum ekki úrslitunum, þannig að ég tek auðvitað ábyrgð á þessum ákvörðunum. En ákvarðanirnar eru teknar undir álagi; ákvarðanirnar eru teknar í miðjum leik. Þetta er þjálfun í beinni útsendingu í miðjum leik. Ég myndi sjá eftir því ef ég hefði ekki hjálpað. Ég myndi sjá eftir því ef við hefðum ekki brugðist við. Ég sé ekkert eftir ákvörðuninni sjálfri,“ sagði Tuchel samkvæmt Sky Sports. "If you're asking if I regret my decisions, then I would say no." ❌Thomas Tuchel backs his in-game management despite England's defeat to Argentina. pic.twitter.com/oybKOAgS3Q— Football on TNT Sports (@footballontnt) July 18, 2026 „Ég tek ábyrgð“ Þegar hann var spurður hver tæki ábyrgð á tapinu í undanúrslitunum svaraði Þjóðverjinn: „Ég tek ábyrgð. Ef það er auðveldara, ef einhver tekur á sig sökina, þá tek ég á mig sökina. Það er ekkert mál, þetta er samningurinn sem maður skrifar undir. Ég skil það og þið hafið fullan rétt til þess en ég mun ekki taka þátt í slíkum leik því fyrir mér er engum um að kenna. Ef þið þurfið einhvern til að kenna um, þá tek ég ábyrgðina. Ég er aðalþjálfarinn. Við lentum í miklum vandræðum í 4-4-2. Við gátum ekki leyst vandamálin síðar í hinu leikkerfinu. Við verðum að lifa með þessu. Þetta er sársauki. Þetta er sársauki okkar, minn sársauki og sársauki leikmannanna. Við finnum mestan sársauka af öllum. Þetta er örið sem við berum núna. Þetta er mjög sársaukafullt tap og við verðum að lifa með þessu tapi, fyrst og fremst. Ekki gagnrýnendurnir, ekki sérfræðingarnir, ekki fjölskyldumeðlimir okkar sem þjást líka með okkur og vilja okkur aðeins það besta, heldur er það í raun við. Við munum komast yfir þetta. Við munum nýta þetta. Við munum bregðast við og það byrjar á morgun. Við þurfum að brúa bil og við erum meðvituð um það, og það er það sem við einbeitum okkur að.“
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Sjá meira