„Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 17. júlí 2026 23:36 Katrín Oddsdóttir lögfræðingur er harðorð um niðurstöðu rannsóknar MAST. Vísir/Arnar Halldórsson Katrín Oddsdóttir lögmaður, sem meðal annars hefur látið sig dýravelferð varða, gagnrýnir harðlega niðurstöðu Matvælastofnunar (MAST) um að ekki hafi verið brotið gegn lögum um velferð dýra þegar langreyður háði hálftíma langt dauðastríð. Katrín vill sjá harðari aðgerðir af hálfu MAST, líkt og beitingu stjórnvaldssekta. „
Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi sem stundar þennan atvinnurekstur enn þá, að segja að hálftíma langt dauðastríð sé bara allt í lagi ef allir eru bara að gera sitt besta. Maður þarf ekki að vera neitt sérstaklega vel gefinn til að átta sig á því að það er svolítið mikil meðvirkni þar á ferðinni.“ Katrín bregður upp hugsunaræfingu, að sjá megi fyrir sér annað dýr, svo sem kind eða hund, að há hálftíma langt dauðastríð. „Það er ekki í lagi, það er ekki mannúðlegt, það samræmist ekki því sem okkur finnst að dýr eigi að þola,“ segir Katrín. „Mér finnst þetta lýsa uppgjöf á því að eftirlitið geti staðið með því sem stendur í löggjöf um velferð dýra.“ Niðurstaðan gangi gegn afstöðu fagráðs um velferð dýra Fagráð um velferð dýra starfar samkvæmt lögum um velferð dýra og er skipað fimm einstaklingum. Ráðið á að taka til umfjöllunar mál á sviði velferðar dýra, fylgjast með þróun dýravelferðarmála og veita Matvælastofnun ráðgjöf á sviði velferðar dýra, svo eitthvað sé nefnt. Katrín segir að með niðurstöðu rannsóknarinnar sé farið gegn afstöðu fagráðsins. „Það sem er alvarlegast í þessu, finnst mér, er sú staðreynd að fagráðið, sem á að vísa leiðina í því hvernig á að túlka þessi lög, hefur sagt mjög skýrt að þessar veiðar geti einfaldlega ekki staðist lögin. Við sjáum núna fullkomið dæmi um það sem fagráðið er að lýsa, að dýr háir hálftíma langt dauðastríð.“ Katrín kallar eftir meiri og hraðari upplýsingagjöf af hálfu MAST. Dýraverndarsinnar viti það að í tilfelli fleiri hvala hafi þurft fleiri en tvö skot til að drepa þá. „Við þurfum að sjá miklu hraðari upplýsingagjöf af hálfu MAST. Við höfum fengið einhverjar sex skýrslur af tuttugu hvölum sem er búið að veiða. Við vitum hins vegar að mörg þessara dýra hafa verið veidd með fleiri en tveimur skotum en þær upplýsingar liggja ekki fyrir því að það tekur langan tíma að fá gögnin.“ Katrín segir litið fram hjá rétti dýrsins og lýsir frati á niðurstöðu Mast. „MAST verður líka að gera ráð fyrir því að dýrið eigi ákveðinn rétt, það er ekki nóg að mannskepnan sé að reyna að gera sitt besta, ekki frekar en þú myndir segja við bílstjóra sem keyrir um allt á bremsulausum bíl: Já þú gerðir þitt besta við að bremsa á rauðu ljósi, vel gert. Eftirlitið hefur alveg ágætis heimildir til að beita sektum og við eigum ekki að sjá að það taki meira en hálfa klukkustund að aflífa nokkurt dýr. Það er að mínu mati algjörlega óásættanlegt og MAST þarf að geta staðið í lappirnar.“ Ekki nægi að skjóta á tilgreint skotsvæði til að bana dýrinu. „Þetta sýnir að þó dýrið sé skotið á þetta tilgreinda skotsvæði er það ekki nóg til að drepa það því þetta eru svo stór dýr. Þó það sé skotið þrisvar sinnum í þessu tilfelli á þetta tilgreinda skotsvæði þá deyr það ekki. Þetta sýnir svart á hvítu hvernig þessar veiðar munu aldrei geta samræmst ákvæðum laga um velferð dýra.“ Niðurstaða Katrínar er afdráttarlaus. Hún hvetur til þess að stjórnvöld beiti þeim úrræðum sem til staðar eru gegn Hval ehf., líkt og stjórnvaldssektum. „Það er ekki hægt að aflífa þau samstundis eins og lög og reglugerð gera ráð fyrir og þá á bara að beita stjórnvaldssektum til þess að verja þessi dýr.“
Hvalir Hvalveiðar Dýraheilbrigði Matvælastofnun Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Innlent Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Fleiri fréttir Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Farsælast að samningarnir haldi út samningstímann Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Sjá meira