Golf

DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryson DeChambeau hefur leikið vel á fyrstu tveimur dögum mótsins og er líklegur til að berjast um síðasta risatitil ársins um helgina.
Bryson DeChambeau hefur leikið vel á fyrstu tveimur dögum mótsins og er líklegur til að berjast um síðasta risatitil ársins um helgina. Getty/Michael Reaves

Ástralski kylfingurinn Lucas Herbert er með eins höggs forskot eftir tvo daga á Opna breska risamótinu í golfi, The Open, eftir ótrúlega spilamennsku í dag.

Herbert lék á átta höggum undir pari og jafnaði vallarmetið á Royal Birkdale-golfvellinum en hann lék fyrsta hringinn á pari. Herbert er því samanlagt á átta höggum undir pari.

Bandaríkjamaðurinn Bryson DeChambeau endaði hringinn á tveimur fuglum á síðustu tveimur holunum og minnkaði því forskotið í eitt högg.

DeChambeau fékk fimm fugla á hringunum og lék hann á fjórum höggum undir pari. Hann er því á sjö höggum undir pari samanlagt.

DeChambeau hafði ekki komist í gegnum niðurskurðinn á fyrstu þremur risamótum ársins og því afar ánægjulegt fyrir hann og hans aðdáendur að sjá hann líklegan til að berjast um sigurinn á mótinu.

Bandaríkjamennirnir Cameron Young, Ryan Gerard og Jackson Suber deila þriðja sætinu á sex höggum undir pari en Suber var í forystu eftir fyrsta hring þar sem hann lék á fimm höggum undir pari.

Sam Burns lék einnig á átta höggum undir pari í dag eins og Herbert en hann er bara í sjötta sæti af því að hann var á þremur höggum yfir pari á fyrsta hring. Burns deilir sjötta sætinu með Suður-Kóreumanninum Si Woo Kim sem var á þremur höggum undir pari í dag.

Bein útsending Sýn Sport frá þriðja deginum hefst klukkan níu í fyrramálið en allt mótið er í beinni útsendingu um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×