Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2026 07:02 Jude Bellingham hraunaði yfir Lionel Messi í undanúrslitaleiknum og sumir eru á því að það hafi verið næg olía á eldinn hjá Messi svo að þessi 39 ára gamli leikmaður gat gert út um leikinn með tveimur stoðsendingum á lokamínútunum. Getty/Catherine Ivill Svipurinn á Lionel Messi eftir samskipti hans við Jude Bellingham náðist á mynd og hefur verið á flugi á netmiðlum. Það leit út fyrir að Bellingham hefði kveikt upp í Messi sem var frábær á lokakaflanum þegar Argentína kom til baka og skoraði tvö mörk á lokamínútunum í sigri á Englandi í undanúrslitaleik HM.
Bellingham útskýrði samtal sitt við Messi eftir undanúrslitaleikinn en gerði lítið úr því sem virtist vera líflegt samtal við hinn magnaða Messi. Myndavélar náðu mynd af Messi þar sem hann glotti og kinkaði kolli eftir að Argentínumaðurinn átti í heitum orðaskiptum við Bellingham. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible) Messi lagði síðan upp tvö mörk seint í leiknum þegar Argentína sneri við stöðunni eftir að Anthony Gordon hafði komið sínum mönnum yfir og vann 2-1 sigur, sem tryggði þeim sæti í úrslitaleiknum á sunnudag gegn Spáni. Þetta atvik á milli Bellingham og Messi, þar sem báðir leikmenn notuðu handatilburði og sýndu svipbrigði þegar leiðir skildu, vakti athygli og enski miðjumaðurinn var spurður út í þetta. „Við vorum í raun að ræða brot. Þetta var ekkert alvarlegt. Ég er viss um að allir munu gera sitt og gera mikið mál úr þessu. En þetta var í raun ekkert stórmál,“ sagði Bellingham. „Mér fannst hafa verið brotið áðan og hann sagði: ‚Hvað með brotið á mér?‘ Ég sagði: ‚Þú ert nógu sterkur til að þola það.‘ Þú veist hvað ég meina?“ sagði Bellingham. „Það voru forréttindi að spila á móti honum, þetta var ekkert þannig á móti honum. Ég er augljóslega í tapliðinu sem er mjög sárt. En það voru forréttindi að mæta einum þeim besta,“ sagði Bellingham. View this post on Instagram A post shared by SportsJOE.ie (@sportsjoedotie)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Körfubolti Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ Sport Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Handbolti Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Íslenski boltinn Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og boðað til fleiri breytinga Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira