Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 18:14 Rússneska handboltalandsliðið má aftur spila á HM í handbolta. Getty/Michal Fludra Alþjóðahandknattleikssambandið aflétti í dag banni á rússneskum og hvít-rússneskum liðum og tekur þessi breyting tafarlaust gildi.
Þetta er í kjölfar þess að Alþjóðaólympíunefndin hefur aflétt tímabundinni útilokun Ólympíunefndar Rússlands, skrifar IHF í fréttatilkynningu. Rússland og Hvíta-Rússland geta því aftur tekið þátt í keppnum á vegum IHF, þar á meðal HM í handbolta. Following the latest recommendations of the IOC Executive Board, the IHF Council has decided to lift the ban on the participation of Russian and Belarusian teams, officials, referees, lecturers and experts in IHF events and activities.https://t.co/LDctdZbsyZ— International Handball Federation (@ihfhandball) July 15, 2026 Hugsanleg þátttaka á HM krefst þó undankeppni eða boðs. EM er haldið af Evrópska handknattleikssambandinu og fellur ekki undir ákvörðun IHF. Rússneskum og hvít-rússneskum liðum og fulltrúum var bönnuð þátttaka á viðburðum IHF í mars 2022, í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. „IHF ítrekar langvarandi stuðning sinn við handknattleikssamband Úkraínu og lýsir yfir áframhaldandi samstöðu með Úkraínu. Sambandið fordæmir harðlega yfirstandandi stríð í Úkraínu og hrikalegar afleiðingar þess,“ skrifar IHF í fréttatilkynningunni. Alþjóðahandknattleikssambandið, sem er stýrt af hinum umdeilda 81 árs gamla forseta dr. Hassan Moustafa, vonar að stríðinu í Úkraínu ljúki bráðlega. „IHF vonar innilega að stríðinu ljúki bráðlega, svo friður geti komist á aftur, eðlileg íþróttatengsl geti endurheimst og friðsamlegt alþjóðlegt samstarf geti hafist að nýju.“
HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Enski boltinn Umfjöllun: Ísland - Frakkland 1-1 | Draumamark Daníels og eitt stig Fótbolti Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Íslenski boltinn Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Fótbolti Fleiri fréttir Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“