Bróðir Yamals slær í gegn á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júlí 2026 11:31 Keyne, litli bróðir Lamines Yamal, í stúkunni á leik Spánar og Belgíu í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins. getty/David Ramos Spánverjinn Lamine Yamal er ein af stærstu stjörnum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Litli bróðir hans hefur einnig slegið í gegn á mótinu.
Fjölskylda Yamals hefur fylgt honum eftir á HM og Keyne, þriggja ára bróðir hans, hefur vakið athygli fyrir sérlega krúttleg og fyndin augnablik. Lamine Yamal’s brother has been so chaotic but brilliant 😆😭 pic.twitter.com/hc84Fe0miC— LiveScore (@livescore) July 10, 2026 Eftir sigur Spánar á Belgíu, 2-1, í átta liða úrslitum í Los Angeles á föstudaginn beindust myndavélarnar upp í stúku á Keyne. Sá litli virtist kunna vel við athyglina og ullaði á heimsbyggðina eins og hann var búinn að tilkynna Yamal að hann myndi gera. Lamine Yamal’s brother is a whole vibe..Bro doesn’t want football he only wants to be a comedian😂 pic.twitter.com/k0bM9KmKh8— Latif (@abanga_lateef) July 12, 2026 „Ég var hjá sjúkraþjálfara og hann hringdi í mig með síma mömmu minnar og sagði að hann ætlaði að reka tunguna út. Þess vegna hló ég þegar ég sá hann á skjánum,“ sagði Yamal eftir leikinn gegn Belgíu. Þrátt fyrir að vera aðeins þriggja ára er Keyne vanur sviðsljósinu. Yamal fagnaði til dæmis með honum úti á velli eftir að Spánn varð Evrópumeistari 2024. Og sá stutti mætti einnig með bróður sínum á Gullboltaathöfnina í París sama ár. Lamine Yamal og foreldrar hans á rauða dreglinum. Keyne er svo nettur í sparifötunum.getty/Mustafa Yalcin Yamal, sem fagnaði nítján ára afmæli sínu í gær, og félagar hans í spænska liðinu mæta Frakklandi í undanúrslitum HM í kvöld. Þessi lið mættust einnig í undanúrslitum EM fyrir tveimur árum. Yamal skoraði þá glæsilegt mark með skoti fyrir utan vítateig.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Sjá meira