Erlent

Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taí­landi

Eiður Þór Árnason skrifar
Mikil hætta var á ferðum.
Mikil hætta var á ferðum. Ap/Sakchai Lalit

Minnst 27 manns létust þegar eldur kviknaði á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands. Forsætisráðherra landsins greinir frá þessu en slökkvilið var kallað á vettvang rétt eftir miðnætti á mánudag. Sáust þá gestir staðarins flýja út um útidyr sem voru alelda.

Anutin Charnvirakul forsætisráðherra tjáði fréttafólki á vettvangi að 27 lík hefðu fundist og aðrir verið fluttir á sjúkrahús. Eldsupptök séu enn í rannsókn.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu en myndskeið sem birt var á X, áður Twitter, sýnir eldtungur teygja sig út úr staðnum á meðan fólk forðar sér út, sumir öskrandi og aðrir að falla til jarðar. Eldur virðist hafa læst sig í minnst tveimur.

Slökkviliðsmenn náðu tökum á eldinum á um hálftíma.

Í fréttum staðarmiðla segir að níu karlar og átján konur séu meðal þeirra 27 sem létust. Meira en 60 manns hlutu aðhlynningu á sjúkrahúsi.

Enn er nokkurra saknað, að því er taílenski miðillinn Thairath greindi frá.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×