Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júlí 2026 19:46 Infantino segist ekki hafa nein afskipti af sjálfstæðum dómstólum innan FIFA. Dominik Bindl/Getty Images Gianni Infantino, forseti FIFA, segir sjálfstæði og óhæði dómsvalda hjá sambandinu vera algjört. Hann, og ekki síður Donald Trump Bandaríkjaforseti, hafi ekki haft áhrif á ákvörðun þess efnis að leikbann Folarin Balogun fyrir leik við Belgíu í kvöld hafi verið fellt niður.
Balogun fékk rautt spjald í síðasta leik Bandaríkjanna og fór af þeim sökum í eins leiks bann, líkt og aðrir leikmenn sem fá reisupassann. Rauða spjaldið var umdeilanlegt og ljóst að Bandaríkin yrðu án lykilmanns í mikilvægum leik við Belga í 16-liða úrslitum á heimsmeistaramóti á heimavelli. Aganefnd FIFA ákvað hins vegar að bannið yrði skilorðsbundið til eins árs og gerði þannig Balogun kleift að spila áfram á HM eins og ekkert hefði ískorist. Líkt og greint var frá á Vísi síðdegis stærði Donald Trump sér af því að hafa fengið leikbanninu hnekkt. Hann hafi hringt í Infantino og þar af leiðandi haft bein áhrif á ákvörðun FIFA. Infantino þvertekur fyrir það í yfirlýsingu sem FIFA birti fyrir hans hönd. Infantino hafi vitaskuld fengið símtal frá Trump, en slíkt sé ekki óeðlilegt. Hann taki við símtölum frá fjölda þjóðhöfðingja. Það þurfi ekki að þýða að téðir leiðtogar hafi áhrif á ákvarðanir innan veggja FIFA. Infantino hafi ekki haft neitt með afléttingu bannsins að gera, sökum þess að aganefndir og dómsstólar innan FIFA séu sjálfstæðir með öllu. Yfirlýsing Infantino: „Ég hef séð athugasemdir almennings varðandi ákvörðun óháðrar aganefndar FIFA varðandi leikbann Folarin Balogun og ég vil ítreka grundvallarreglu stjórnar FIFA.“ „Dómsvald FIFA er óháð. Það starfar sjálfstætt, beitir agareglum FIFA og tekur afstöðu til mála út frá gildandi reglum og þeim staðreyndum sem liggja fyrir. Sjálfstæði þess er nauðsynlegt fyrir trúverðugleika og heiðarleika knattspyrnunnar og það verður ávallt að virða.“ „Já, ég ræði reglulega mál sem tengjast HM í knattspyrnu við forseta Bandaríkjanna og um þetta mál fékk ég símtal frá Donald Trump forseta, rétt eins og ég fæ símtöl frá þjóðhöfðingjum, embættismönnum, hagsmunaaðilum í knattspyrnu og viðskiptastjórnendum víðsvegar að úr heiminum um margvísleg mál. Í samtali okkar útskýrði ég að lagalegt ferli væri í gangi sem felur í sér óháða dómsstofnanir FIFA og að málið yrði tekið fyrir af þar til bærum aðilum síðar. Þannig virkar kerfi FIFA og það er meginregla sem ég mun alltaf standa við.“ „Ég les ákvarðanir aganefndar FIFA þegar þær eru gefnar út. Stundum er ég hissa á þeim. Stundum er ég sammála þeim og stundum ósammála.“ „Það sem ég geri hins vegar alltaf er að virða þessar ákvarðanir og sjálfstæði þeirra aðila sem taka þær. Hvort okkur persónulega líkar ákvörðun eða ekki skiptir ekki máli. Virðing fyrir óháðum stofnunum og réttarríkinu er það sem verndar heiðarleika keppna okkar og trúverðugleika FIFA ávallt.“
FIFA HM 2026 í fótbolta Bandaríkin Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira