Golf

Gunn­laugur Árni sigraði Arnold Palmer-bikarinn

Andri Broddason skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson var leikmaður alþjóðaliðsins sem bar sigur úr býtum í Arnold Palmer-bikarnum.
Gunnlaugur Árni Sveinsson var leikmaður alþjóðaliðsins sem bar sigur úr býtum í Arnold Palmer-bikarnum. Ryan Sirius Sun/Getty Images

Gunnlaugur Árni Sveinsson var hluti af alþjóðaliði sem endaði á að vinna Arnold Palmer-bikarinn. Alþjóðaliðið keppti gegn Bandaríkjunum en aðeins eitt stig skildi liðin af.

Arnord Palmer-bikarinn er áhugamannamót í golfi sem er spilað á svipaðan hátt og Ryder-bikarinn. Þetta er liðakeppni þar sem Bandaríkin keppa á móti alþjóðlegu liði. Spilaðar eru nokkrar mismunandi keppnir og eru einhverjar viðureignir blandaðar þar sem kylfingar af hvoru kyni leika saman.

Mótið byrjaði á föstudaginn og lauk nú í dag. Á fyrsta keppnisdegi var spilaður fjórbolti þar sem tveir kylfingar eru saman í liði og telur lægsta skor einstaklings. Liðin voru blönduð og spilaði Gunnlaugur Árni með Mariu Jose Marin. Þau töpuðu sinni viðureign en þau voru tveim holum undir þegar þrjár voru eftir.

Á laugardeginum voru spilaðir tveir hringir. Á fyrri hringnum var spilaður fjórmenningur þar sem kylfingar saman í liði slá boltann til skiptis. Þar var Gunnlaugur Árni með Daniel Bennet í liði og náðu þeir að tryggja sigurinn á næstsíðustu holu hringsins.

Á seinni hring laugardagsins var einnig spilaður fjórmenningur en þá í blönduðum liðum þar sem karlkyns og kvenkyns kylfingar eru saman. Þá var Gunnlaugur Árni með Caitlin Maurice en þau unnu aðeins eina holu saman og töpuðu þeirri viðureign stórt.

Lokaviðureignin var spiluð í dag þar sem raðað var upp í einfalda holukeppni milli kylfinga. Þar mætti Gunnlaugur Árni Connor Williams og spilaði Gunnlaugur vel. Hann vann sex holur af fyrri níu holunum og hafði Williams engin svör við því.

Alþjóðaliðið endaði með 30,5 stig gegn Bandaríkjunum sem voru með 29,5 stig. Titillinn var því unninn með minnsta mun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×