Innlent

Fannst látinn í tjaldi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hinn látni dvaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum.
Hinn látni dvaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum.

Karlmaður var úrskurðaður látinn eftir að tveir fundust meðvitundarlausir á tjaldsvæði á Suðurlandi í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi á Facebook.

Lögreglunni barst tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum um hádegisbil í gær. Lögregla og sjúkralið voru þegar send á vettavang.

„Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Málið er rannsakað sem slys og er meðal annars til skoðunar um hvort gaseitrun hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×