Mo Salah klár fyrir kvöldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 15:01 Mohamed Salah fagnar marki sínu á móti Nýja-Sjálandi. Næst á dagskrá hjá Salah og félögum er að mæta nágrönnum þeirra í Eyjaálfu, liði Ástrala. Getty/Alex Grimm Mohamed Salah er aftur leikfær og virðist ætla að spila með Egyptalandi í 32-liða úrslitum gegn Ástralíu í kvöld. Þjálfarinn Hossam Hassan vildi þó ekki staðfesta að stórstjarnan yrði í byrjunarliðinu.
Hinn 34 ára gamli Salah meiddist eftir 57 mínútur í 1-1 jafntefli Egyptalands gegn Íran síðastliðinn föstudag, jafntefli sem tryggði Egyptum sæti í útsláttarkeppninni. Alvarleiki meiðslanna kom í ljós þegar hann bað um að vera tekinn af velli á meðan leikurinn var enn í járnum. Goðsögnin frá Liverpool var í kjölfarið greind með tognaðan aftanlærisvöðva af læknateymi Egyptalands og hóf það sem sambandið lýsti sem „öflugri endurhæfingaráætlun“ til að tryggja þátttöku hans á móti Ástralíu í 32 liða úrslitunum. It looks like we will be seeing Mohamed Salah on the pitch tomorrow against the Socceroos, but not from the first whistle 👀Egypt coach Hossam Hassan says he won't be taking any risks with his legendary winger, who substituted himself off the pitch in Egypt's last group stage… pic.twitter.com/ILpAmiUFCU— 10 Sport (@10SportAU) July 3, 2026 Salah hóf aftur æfingar með egypska landsliðinu á miðvikudag og var viðstaddur og virtist nokkuð óhindraður á þeim fimmtán mínútum sem fjölmiðlum var leyft að fylgjast með á lokaæfingu liðsins á fimmtudag. Nokkrum klukkustundum síðar staðfesti Hassan á blaðamannafundi fyrir leikinn að lykilmaður hans yrði leikfær. „Gegn Íran kom í ljós að hann tognaði í aftanlærisvöðva í seinni hálfleik og bað um að vera skipt af velli. Okkar frábæra læknateymi sá um það og við reyndum að fá hann á takmarkaðar liðsæfingar strax í gær,“ sagði þjálfarinn í gegnum túlk frá FIFA. „Salah er ástríðufullur leikmaður og hann hlakkar mikið til að leggja sitt af mörkum með liðsfélögum sínum á morgun [í kvöld]. Auðvitað ætla ég ekki að taka neina áhættu nema ég sé hundrað prósent viss um að hann sé heill heilsu og tilbúinn í slaginn á morgun [í kvöld],“ sagði Hassan og bætti við. 🤕 "Whether he starts tomorrow, we'll see" 🇪🇬 Hossam Hassan gives an update on Egypt's star man Mohammed Salah's fitness prior to them taking on the Socceroos for a place in the round of 16!🏆 #FIFAWorldCup | June 12 - July 20 | Every Match on SBS 📺 pic.twitter.com/nVm40ItK7O— SBS Sport (@SBSSportau) July 3, 2026 „Við hlökkum til að sjá hann spila á morgun en erum þó ekki vissir um hvort hann verði í byrjunarliðinu.“ Þjálfari Ástralíu, Tony Popovich, er vel meðvitaður um hættuna sem af honum stafar og býst líka við að þurfa að hafa áhyggjur af Mo Salah í leiknum. „Já, við undirbjuggum okkur fyrir að Mohamed Salah myndi spila. Við höfum séð þegar hann er ekki á vellinum hvaða leikmenn eru í þeim stöðum þar sem hann gæti spilað, þannig að við undirbúum okkur fyrir báðar sviðsmyndir og sjáum til á morgun [í kvöld],“ sagði Popovich.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira