Sport

Reykjavíkurþríþrautin í fyrsta sinn í mið­borg Reykja­víkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þríþrautarfólkið mun synda í sjónum fyrir utan Skarfaklett, meðfram hafnargarðinum að Skarfagarðsvita. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Þríþrautarfólkið mun synda í sjónum fyrir utan Skarfaklett, meðfram hafnargarðinum að Skarfagarðsvita. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Alexander Koerner

Ægir3 og Reykjavíkurborg standa fyrir einstökum þríþrautarviðburði þegar Reykjavíkurþríþrautin fer fram í fyrsta sinn í miðborg Reykjavíkur á sunnudaginn.

Ægir3 er Þríþrautarfélag Reykjavíkur og elsta þríþrautarfélag landsins.

Keppt er í ólympískri þríþraut en þá þarf að synda 1500 metra, hjóla fjörutíu kílómetra og hlaupa tíu kílómetra.

Almennur flokkur í Reykjavíkurþríþrautinni er ætlaður öllum þeim sem skráðir eru í þríþrautarfélag. Flokkurinn gefur stig í bikarkeppni félaga og einstaklinga.

Synt verður við Skarfaklett, meðfram hafnargarðinum að Skarfagarðsvita og til baka tvo hringi, samtals 1500 metra.

Hjólað verður frá Skarfaklettssvæðinu eftir Sæbraut að Hörpu. Farnir verða fimm hringir, samtals fjörutíu kílómetrar.

Hlaupið verður meðfram Sæbraut á göngustígnum að Hörpu og til baka að Skarfakletti. Hlaupinn verður einn hringur, samtals tíu kílómetrar.

Það er athyglisvert að skoða keppnisreglur Þríþrautasambands Íslands en þar kemur meðal annars fram að skylt er að nota blautbúning og hjálm í keppninni auk þess sem óheimilt er að keppa með tónlist í eyrum í öllum greinum keppninnar.

Bannað er að henda rusli á keppnisleið og allir keppendur taka þátt á eigin ábyrgð. Aldurstakmark í ólympískri þríþraut er 18 ár miðað við fæðingarár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×