Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2026 23:17 Svona lítur Levi's-merkið á Levi's-leikvanginum út á meðan heimsmeistaramótið stendur yfir en fyrirtækið svaraði með því að merkja allar búðir sínar eins. Getty/Stu Forster Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur mjög strangar reglur þegar kemur að sýnileika fyrirtækja á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Meðal annars eru styrktarsamningar leikvanga ekki leyfðir á meðan HM stendur yfir sem þýðir að FIFA breytir hreinlega nöfnum leikvanga. Það er samt ekki aðeins á vellinum sem hægt er að sjá snilldartakta á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Á nokkrum leikvöngum hafa nauðsynlegar breytingar leitt til skemmtilegra hugmynda, þannig að meðal annars Levi's Stadium er kominn á varir margra, þótt hann heiti alls ekki Levi's Stadium á meðan mótið stendur yfir. After FIFA covered Levi’s Stadium branding during the World Cup, Levi’s leaned into the situation by altering its logo to match the censored signage and turning the moment into a clever marketing campaign.#levis #fifa #worldcup pic.twitter.com/Ni4t1I6nHB— Tomson (@TomsonWoo) June 21, 2026 „Allt í einu verður þetta umtalsefni bæjarins. Miklu meira umtalsefni en San Francisco Bay Area Stadium. Þetta er snilldarlega gert,“ segir Sune Bang, sem er samskiptaráðgjafi og vörumerkjasérfræðingur hjá Go' Morgen Danmark, við TV2 sjónvarpsstöðina. Levi's Stadium hefur skipt um nafn á meðan HM stendur yfir, því Levi's er ekki opinber styrktaraðili. Hið þekkta rauða og hvíta merki er með öðrum orðum bannað á meðan mótið stendur yfir og því hefur tískufyrirtækið neyðst til að hylja merki sitt á framhlið leikvangsins. LEVI'S JUST COVERED UP ITS OWN STORES 👀After FIFA covered the Levi's Stadium logo during the World Cup, Levi's has now taken things a step further by covering the signage on its own stores.This marketing rollout just keeps getting better 😭🔥#Levis #WorldCup2026 #SSD https://t.co/Qhf50IqXfI pic.twitter.com/RSHucRd4QT— SIMONSAYSDRIP (@simonsaysdrip) June 19, 2026 En Levi's hefur líka hulið merki sitt á öðrum stöðum. Reyndar er merkið á framhliðum verslana um allan heim pakkað inn á sama hátt, eins og sjá má á samfélagsmiðlum fyrirtækisins. Komdu og heimsæktu okkur, ef þú finnur okkur, skrifar Levi's til dæmis á Instagram. Merki fyrirtækisins á samfélagsmiðlum er líka falið eins og merkið á leikvanginum. „Þetta kallast laumusölumennska (e. ambush marketing) þegar maður tengir sig við stóran viðburð sem maður hefur ekki réttindi á. Það eru ótal dæmi um að auglýsingafólk hafi hugsað á skapandi hátt um hvernig það getur samt komist í gegn og orðið hluti af umræðunni um HM,“ segir Sune Bang. 🚨🌎 FIFA asked Gillette to hide its logo at the Gillette Stadium because it wasn't an official World Cup sponsor. The brand did so by concealing its logo to simulate shaving cream. 🪒This is chess, not checkers. 😭🧠 pic.twitter.com/q2DQgDIaL1— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) June 20, 2026 Gillette hefur reynt að gera eitthvað svipað, nú þegar Gillette Stadium hefur tímabundið skipt um nafn yfir í Boston Stadium. Svar Gillette var að sprauta raksápu yfir Gillette-markið. Þau segja með því Gillette án þess að segja Gillette. Það er hægt að gefa fyrirtækinu stig fyrir að vera skapandi. „Þau grípa augnablikið og gera grín að þessu sjálf. Það gerir það að verkum að þau fá athygli sem hinir fá ekki,“ segir Sune Bang. Strangar reglur fyrir fyrirtæki stafa af því að FIFA selur einkaréttarsamninga fyrir HM. Þess vegna vill knattspyrnusambandið ekki að aðrir fái ókeypis auglýsingu.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn „Þetta gekk eins og í sögu“ Íslenski boltinn Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Enski boltinn Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Íslenski boltinn Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Ronaldo: „Sennilega síðasta árið mitt á ferlinum“ Rúnar Alex fékk óvænt tækifæri í stórsigri FCK Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca Kristall Máni lagði upp en missti líka mark vegna VAR „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Jafntefli í Íslendingaslag Ekkert fær stöðvað lærisveina Sigga Ragga Linda Líf með mark í stórsigri Kristianstad Kolbeinn lagði upp jöfnunarmarkið í ótrúlegu 5-5 jafntefli Hjörtur og Kolbeinn máttu þola stórt tap gegn Degerfors Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Brynjólfur skoraði þegar Groningen vann stórsigur Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels Hafrún skoraði í öruggum sigri The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Sjá meira