Samstarf

Lang­flestir gera þessi mis­tök áður en þeir byrja að mála

Slippfélagið
„Húsin eru yfirleitt mjög dugleg að segja okkur frá því þegar þau þurfa athygli. Flögnun, sprungur, upplitun eða möttun á málningu eru allt merki um að varnarlagið sé farið að gefa sig,“ segir Baldur Ingi Karlsson, verslunarstjóri Slippfélagsins á Akureyri.
„Húsin eru yfirleitt mjög dugleg að segja okkur frá því þegar þau þurfa athygli. Flögnun, sprungur, upplitun eða möttun á málningu eru allt merki um að varnarlagið sé farið að gefa sig,“ segir Baldur Ingi Karlsson, verslunarstjóri Slippfélagsins á Akureyri.

Sumarið er tíminn þegar margir líta yfir húsin sín með nýjum augum. Eftir langan vetur koma oft í ljós litlar sprungur, flagnandi málning eða aðrir blettir sem hafa látið lítið yfir sér fram að þessu. En hvenær er kominn tími til að grípa inn í?

„Húsið er svolítið eins og bíllinn okkar. Það þarf reglulegt eftirlit og viðhald til að halda sér í góðu ástandi,“ segir Baldur Ingi Karlsson, verslunarstjóri Slippfélagsins á Akureyri. Hann hefur ráðlagt fjölda húseigenda í gegnum árin og veit vel hvaða spurningar brenna á fólki þegar sumarið gengur í garð.

Verslun Slippfélagsins á Akureyri er staðsett að Gleráreyrum 2.

Húsin senda skýr skilaboð

Að sögn Baldurs þarf oft ekki sérfræðing til að sjá að viðhald sé orðið tímabært. „Húsin eru yfirleitt mjög dugleg að segja okkur frá því þegar þau þurfa athygli. Flögnun, sprungur, upplitun eða möttun á málningu eru allt merki um að varnarlagið sé farið að gefa sig.“

Íslenskt veðurfar sé sérstaklega krefjandi fyrir utanhússmálningu. Vindur, rigning, frost og sól vinni stöðugt á yfirborðinu. „Þegar málningin byrjar að missa eiginleika sína er mikilvægt að bregðast við. Það sem hefði verið einfalt helgarverkefni getur annars þróast yfir í stærri og kostnaðarsamari framkvæmd.“

Byrjaðu á að finna orsökina

Margir vilja stökkva beint í að kaupa málningu og pensla, en Baldur segir fyrsta skrefið vera allt annað. „Við ráðleggjum fólki alltaf að byrja á því að skoða hvað veldur vandanum. Stundum er flögnun ekki vandamálið sjálft heldur afleiðing annars.“

Hann nefnir dæmi um vatn sem finnur sér leið inn um litla sprungu ofan á steyptum kanti. „Rakinn getur ferðast innan veggjarins og komið út á allt öðrum stað. Þá sér fólk flagnandi málningu og heldur að þar sé vandamálið, en orsökin er annars staðar. Þess vegna segi ég oft að það sé betra að fleiri en eitt auga skoði málið.“

Þar kemur ráðgjöf sérfræðinga Slippfélagsins sterkt inn. Í verslunum fyrirtækisins getur fólk fengið leiðbeiningar um bæði greiningu vandamála og val á réttum lausnum.

Hér má kynna sér betur útimálningu Slippfélagsins.

Leyndarmálið er undir málningunni

Ef Baldur ætti að nefna eitt atriði sem húseigendur vanmeta mest væri það undirbúningsvinnan. „Fólk sér fyrir sér að málningarvinnan snúist um að opna dolluna og byrja að mála. En sannleikurinn er sá að stærsti hluti gæða verksins verður til áður en fyrsta strokan er tekin.“

Yfirborðið þurfi að þvo vel, hreinsa, fjarlægja lausa málningu og gera við skemmdir áður en það er málað. Viðgerðir og málningarlausa fleti þarf síðan að grunna. „Það eru engar flýtileiðir. Góður undirbúningur tryggir viðloðun málningarinnar og hefur bein áhrif á endinguna.“

Sérstaka athygli þurfi að veita stöðum sem fá mikið vatnsálag, svo sem gluggasyllum og steyptum köntum. „Á slíkum flötum mælum við með að grunna og nota sérstaka teygjanlega þykkmálningu sem veitir aukna vörn gegn raka, áður en málað er.“

Þrjú mistök sem kosta mest

Aðspurður um algengustu mistökin sem húseigendur gera þarf Baldur ekki langan umhugsunartíma. „Í fyrsta lagi bíður fólk of lengi. Í öðru lagi vanmetur það undirbúningsvinnuna. Og í þriðja lagi notar það stundum of lítið magn af málningu.“

Hann bendir á að þegar hús sé málað sé í raun verið að setja veðurvörn utan um bygginguna. „Markmiðið er ekki bara að gera húsið fallegra heldur að verja það. Til þess þarf nægilegt magn af málningu og rétt verkfæri. Málningarfilman þarf að vera sterk og samfelld til að standa gegn íslensku veðri.“

Á vef Slippfélagsins má finna ýmis gagnleg ráð.

Besti dagurinn til að mála kemur kannski á óvart

Margir bíða eftir heitasta og sólríkasta degi sumarsins til að hefjast handa. Baldur brosir þegar það berst í tal. „Það kemur mörgum á óvart en fullkominn málningardagur er ekki endilega sólardagur.“

Hann segir hlýjan, þurran og skýjaðan dag oft vera bestu aðstæðurnar. „Beint sólarljós getur valdið því að málningin þorni of hratt. Það getur haft áhrif bæði á útlit og viðloðun. Við viljum að málningin fái að þorna á sínum hraða.“

Þegar líða tekur á sumarið þurfi einnig að fylgjast vel með rakastigi og hitastigi á kvöldin.

Eitt ráð sem getur sparað stórfé

Ef Baldur mætti aðeins gefa húseigendum eitt ráð fyrir sumarið væri það einfalt. „Hann þarf að fylgjast reglulega með húsinu sínu og bregðast við strax þegar fyrstu merki um slit koma í ljós.“

Hann bendir á að viðhald þurfi ekki alltaf að fela í sér stórframkvæmdir. „Stundum nægir að sinna einni hlið hússins eða ákveðnum viðkvæmum svæðum. Margir hafa komið sér upp því kerfi að taka einn hluta hússins fyrir á hverju ári. Þá dreifist bæði vinna og kostnaður.“

En hann bætir við einni áhugaverðri ábendingu. „Meiri málning er ekki alltaf betri. Ef málningarlög verða of mörg getur málningarfilman orðið of þykk og misst öndunarhæfni og hindraði rakaflæði úr undirlaginu og það dregur úr sveigjanleika filmunnar. Það snýst alltaf um að velja réttu lausnina, ekki endilega mestu lausnina.“

Brosið sem segir allt

Eftir öll árin í ráðgjöf og þjónustu stendur eitt upp úr hjá Baldri. „Það sem veitir mér mesta ánægju er þegar viðskiptavinir koma til baka brosandi og sýna okkur myndir af húsinu sínu eftir framkvæmdina.“

Þá sé markmiðinu náð.

„Þegar fólk finnur að það fékk góð ráð, réttu vörurnar og verkið tókst vel, þá vitum við að við höfum hjálpað til. Það er besta viðurkenning sem hægt er að fá.“

Og kannski er það einmitt það sem húsið þitt þarf í sumar: ekki bara nýja málningu heldur góð ráð áður en pensillinn fer á loft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×