„Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 07:20 Neymar Jr. gat ekki haldið aftur af tárum sínum í leikslok. Tilfinningarnar voru miklar. Getty/Michael Reaves/Robert Cianflone Neymar átti tilfinningaþrungna endurkomu með brasilíska landsliðinu í gær eftir 981 dags fjarveru frá landsliðinu.
Neymar var skipt inn á þegar um stundarfjórðungur var eftir af leik Brasilíu gegn Skotlandi og tilfinningarnar voru miklar eftir leikinn sem Brasilíumenn unnu 3-0. „Þetta hafa verið langir dagar fjarri brasilíska landsliðinu. Ég hef verið lengi í burtu, svo þetta er öðruvísi landslið, ég sé það á annan hátt. En ég er mjög ánægður með að geta snúið aftur til að spila á HM eftir svo mörg ár. Ég þakka allri brasilísku þjóðinni,“ sagði Neymar. „Ég veit að ég get ekki náð til allra, en ég vil hér með koma á framfæri þakklæti mínu fyrir stuðninginn,“ sagði Neymar. Neymar stóð lengi á hliðarlínunni og beið áður en honum var skipt inn á, því boltinn fór ekki úr leik. „Þetta var eins og kvikmynd sem spilaðist í hausnum á mér, þar sem boltinn vildi ekki fara úr leik. Það var hornspyrna, en ég vildi ekki að leikurinn stöðvaðist á því augnabliki, því hornspyrnan var hættuleg. Svo allt fór mjög hratt í gegnum huga minn. En þetta var augnablik mikillar gleði,“ sagði Neymar. Brasilísku liðsfélagarnir leituðu að Neymar og reyndu að spila á hann við hvert tækifæri. Þegar nokkrar mínútur voru eftir náði hann að fiska aukaspyrnu eftir að hafa verið togaður niður á meðan hann sótti fram með boltann. Besta færið hans kom á 89. mínútu. Hann smeygði sér inn vinstra megin í vítateignum, færði boltann yfir á hægri fótinn áður en hann sendi skot í átt að markinu en skoski markvörðurinn Angus Gunn varði örugglega. Þegar lokaflautið gall gat Neymar ekki haldið aftur af tárunum. „Ég varð tilfinningaþrunginn eftir leikinn þegar ég leit upp til fjölskyldu minnar þarna uppi og allir grétu. Allt sem ég hef þjáðst hafa þau líka þjáðst. Þetta er blanda af tilfinningum, en það var allt þess virði. Ég varð snortinn, já. Ég fór einn inn í búningsklefa og grét. Það er mikill léttir að upplifa allt þetta aftur,“ sagði Neymar. Brasilíska stjarnan Vinicius Junior var stoltur og glaður fyrir hönd landa síns, þrátt fyrir að þeir keppi líka um sömu stöður á vellinum. „Það var töfrum líkast að sjá Neymar aftur. Hann er goðsögnin okkar. Goðsögn okkar allra,“ sagði Vinicius eftir lokaflautið að sögn Fabrizio Romano. Brasilía er komin áfram sem sigurvegari riðilsins og mætir nú liðinu í öðru sæti í F-riðli. Það getur orðið annaðhvort Holland, Japan eða Svíþjóð. Neymar var einnig spurður hvort hann byggi vonir við að fá mínútur í næsta leik Brasilíu. „Það veltur algjörlega á herra Ancelotti, ekki satt? Látum hann ákveða. Ég er tilbúinn,“ sagði Neymar. Eitthvað bendir til þess að Neymar muni reima á sig skóna aftur, því Ancelotti var ánægður með það sem hann sá. „Hann fékk tækifæri til að spila því mér fannst hann eiga það skilið. Hann æfði og lagði hart að sér til að koma til baka og gerði það af fagmennsku. Mér fannst hann standa sig vel þær fáu mínútur sem hann var inni á vellinum,“ sagði Ancelotti á blaðamannafundinum eftir sigurinn. „Neymar þarf enga aukahvatningu. Allir elska hann hér. Hann þarf enga hvatningu til að klæðast brasilísku treyjunni,“ sagði Ancelotti.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira