Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 14:32 Við uppsetningu myndanna á sýningunni. Aðsend Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni er spurt hvaða augum listamenn líta borgina og hvaða einkenni hennar eru dregin fram í myndmáli ólíkra kynslóða?
Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru: Spessi, Nína Tryggvadóttir, Jón Engilberts, Louisa Matthíasdóttir, Ólafur Elíasson, Anna María Bogadóttir, Hlynur Helgason, Bára Kristinsdóttir og Skarphéðinn Bergþóruson. Sýningin opnaði fyrir helgi og stendur til 18. október. Í tilkynningu um sýninguna kemur fram að á sýningunni séu kynnt ný samtímalistaverk, samhliða því að dregin eru fram áhugaverð listaverk úr safneign. Þá eru einnig fengnir að láni forvitnilegir munir frá öðrum söfnum og stofnunum. Þróast frá kaupstað í ferðamannaborg „Þar sjáum við borgina þróast frá kaupstað og sjávarþorpi til fjölþjóðlegrar menningar- og ferðamannaborgar í lifandi, brotakenndri og síbreytilegri mynd. Sýningin kallar fram spurningar um ímynd, borgarskipulag, samfélagsgerð og menningarlega sjálfsmynd. Hinu áþreifanlega er stillt upp samhliða hinu ljóðræna, hinu sögulega og hinu listræna, hinu persónulega og hinu sammannlega,“ segir í tilkynningunni. Sýningin er á Kjarvalsstöðum. Aðsend „Á sýningunni Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd sem haldin er í tilefni af 240 ára afmæli borgarinnar sjáum við hvernig listamenn hafa séð og túlkað borgina yfir þessar rúmu tvær aldir. Þar má sjá verk sem taka á ást til borgarinnar, átökum, skráningu á því sem fyrir ber og ýmsum forvitnilegum munum. Sýningin er full af kunnuglegum sjónarhornum en einnig er margt sem kemur á óvart og vekur upp spurningar um lífið og menninguna í borginni,“ segir einn af sýningarstjórunum, Sigurður Trausti Traustason, í samtali við Vísi. Dagskrá með Hann segir myndirnar á sýningunni annars vegar sýna Kjarvalsstaði þar sem sýningin er haldin og svo verk Ólafs Elíassonar, Reykjavíkurmyndröð, frá árinu 2003. Hann segir að samhliða sýningunni verði í boði ríkuleg dagskrá afþreyingar, viðburða og fræðslu. Verkefnið er unnið af sýningarteymi Listasafns Reykjavíkur sem samanstendur af Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttur.
Myndlist Reykjavík Sýningar á Íslandi Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Sjá meira