UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Sindri Sverrisson skrifar 22. júní 2026 09:32 Argentínumenn gátu svalað þorsta sínum í drykkjarhléum í Kansas City þegar þeir unnu Alsír í fyrsta leik á HM. Getty/Alex Pantling UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, ætlar ekki að hafa vatnspásur í öllum leikjum á EM og í Meistaradeild Evrópu, líkt og tíðkast á HM í fótbolta í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Fáum dylst að drykkjarhléin á HM eru til þess að koma að auglýsingum í sjónvarpi, um miðjan fyrri og seinni hálfleik allra leikja. FIFA kynnti þó hléin til leiks á þeim forsendum að verið væri að hugsa um hag leikmanna, vegna mikils hita sem verið gæti á leikjum á mótinu. Um þriggja mínútna hlé er að ræða í hvorum hálfleik og hafa þau verið gagnrýnd í fjölmiðlum sem og jafnvel með bauli stuðningsmanna á leikjunum sjálfum. The Guardian kallaði eftir svörum frá UEFA um hvort sami háttur yrði hafður á þegar EM yrði næst haldið, árið 2028, sem og í Meistaradeild Evrópu. Talsmaður UEFA svaraði því skýrt að engar áætlanir væru um að gera drykkjarhlé að skyldu í öllum leikjum. Englendingar verða á heimavelli á næsta Evrópumóti og þar verður ekki nein skylda að hafa vatnspásur.Getty/Bradley Collyer „UEFA er ekki með nein plön um að breyta reglunum fyrir komandi mót, þar á meðal Meistaradeild Evrópu og EM 2028,“ sagði í svarinu. EM 2028 fer fram að sumri til í Englandi, Skotlandi, Wales og Írlandi, og ljóst að það gæti orðið ansi heitt á sumum leikjanna. Það breytir hins vegar ekki stefnu UEFA sem er sú að hafa ekki sérstök drykkjarhlé nema að hitinn fari yfir 35 gráður. Ef hitinn er undir þessum viðmiðunarmörkum þá er það í höndum dómara að ákveða hvort og þá hvenær hann vill gera hlé svo að leikmenn geti svalað þorsta sínum.
HM 2026 í fótbolta EM 2028 í fótbolta Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Enski boltinn Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Fleiri fréttir Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Sjá meira