Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 13:02 Assim Madibo var bersýnilega brugðið eftir að hafa fótbrotið Ismael Kone í Vancouver í gær. Getty/Dale MacMillan Assim Madibo, leikmaður Katar, var rekinn af velli í leiknum gegn Kanada á HM í fótbolta í gær eftir brot sem olli því að Ismael Kone fótbrotnaði. Madibo var í öngum sínum eftir brotið og kom inn í búningsklefa Kanada eftir leik til að biðjast afsökunar.
Kanada svo gott sem tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum HM með 6-0 risasigri þar sem Jonathan David skoraði þrennu. Það skyggði hins vegar á gleðina að Kone skyldi fótbrotna snemma í seinni hálfleik. Madibo fékk í fyrstu gult spjald en því var svo breytt í rautt og er hann fyrsti leikmaðurinn sem fær rautt spjald fyrir slæma tæklingu á HM síðan árið 2014. Viðkvæmir eru varaðir við að skoða myndband af atvikinu. O barulho que fez na hr da entrada não sai da minha cabeça. Que cena forte cara, que coisa triste. A entrada do Madibo foi no pé de apoio, aí mermão, ou quebra o machuca muito. Imagens @CazeTVOficial pic.twitter.com/I6j0BsnPXE— antonio maia (@antoniomaia14) June 18, 2026 „Leikmaðurinn bað Ismael afsökunar. Hann kom inn í búningsklefa til að biðja hann afsökunar. Isamel lét liðið vita hvað gerðist,“ sagði Jesse Marsch, þjálfari Kanada, en Kone var farinn á sjúkrahús þegar Madibo kom inn í búningsklefann. „Ég held að hann hafi ekki ætlað sér í svona hræðilega tæklingu. Svo ég kenni honum ekki um það en ég skil ekki viðbrögðin á varamannabekknum hjá þeim að berjast fyrir því að þetta yrði ekki rautt spjald þegar þetta var augljóst brot sem olli því að leikmaður fótbrotnaði,“ sagði Marsch. Eins og fyrr segir hefur ekki verið veitt rautt spjald fyrir grófa tæklingu síðan á HM í Brasilíu árið 2014. Belginn Steven Defour var þá rekinn af velli fyrir brot sitt á Kim Shin-Wook, leikmanni Suður-Kóreu.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Jorge Messi látinn Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Sjá meira