Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. júní 2026 11:01 Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Vísir/Vilhelm Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, munu halda í opinbera heimsókn til Færeyja dagana 22. til 24. júní.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að þar taki lögmaðurinn í Færeyjum, Beinir Johannesen, og eiginkona hans, Helena Johannesen, á móti forsetahjónum. Markmið heimsóknarinnar sé að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi landanna, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála. Dagskráin hefjist eftir hádegi mánudaginn 22. júní með fundi forseta Íslands og lögmanns Færeyja í Tinganesi í Þórshöfn. Á meðan heimsæki Björn Skúlason og Helena Johannesen Heima veitingahúsaklasann. Í kjölfarið verði forsetahjónunum boðið til móttöku í Tinganesi ásamt ráðherrum færeysku ríkisstjórnarinnar og næst heimsæki forsetahjónin Løgtingið þar sem þingforsetinn, Johan Dahl, tekur á móti þeim. Dagskrá mánudagsins ljúki með hátíðarkvöldverði á Hotel Føroyar. Á öðrum degi heimsóknarinnar fari forsetahjónin í ferð um Eysturoy og Borðoy. Þar verði vindorkuver SEV (rafmagnsveitu Færeyja), Eysturoyargöngin, MEST skipasmíðastöðin í Skála, ný sundlaug í Runavík og laxeldisfyrirtækið Bakkafrost heimsótt. Eftir hádegi haldi forsetahjónin til Klaksvíkur þar sem haldið verður viðskiptaþing íslenskra og færeyskra fyrirtækja. Einnig heimsæki þau vinnustofu myndlistarmannsins Edwards Fuglø, róðrarklúbb Klaksvíkur og heimavistarskólann Rótina sem leggur áherslu á fræðslu um færeyska matargerð, handverk og sjálfbærni. Á lokadegi heimsóknarinnar heimsæki þau nýsköpunar- og frumkvöðlamiðstöð Þórshafnar og Færeyjaháskóla. Heimsókninni ljúki um miðjan dag á gagnkvæmnismóttöku forsetahjóna í Norræna húsinu í Þórshöfn.
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Færeyjar Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira